19.08.1919
Efri deild: 34. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)

25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina

Magnús Torfason:

Jeg gat þess við 1. umr. þessa máls, að jeg áliti, að það, sem laga þyrfti, væri mælingarnar. og þá einkum utan Reykjavíkur. Í Reykjavík hygg jeg að þær sjeu nokkurn veginn í lagi, en úti um landið mun þeim vera töluvert ábótavant. Get jeg eigi sjeð, að skrifstofa hjer í Reykjavík geti bætt neitt úr því. Eftir því, sem jeg best veit, hefir tilhögunin verið sú hingað til, að lögreglustjórinn hefir mælt eða látið mæla, og maður utan stjórnarráðsins endurskoðað. Býst jeg ekki við, að mikil breyting verði á þessu, þó skrifstofa yrði sett á stofn. Að minsta kosti mundi alt ganga eftir gamla laginu úti um land. Jeg sje því enga ástæðu til að veita fje til sjerstakrar skrifstofu hjer, en mjer finst eina ráðið vera að launa sómasamlega þeim mönnum úti um land, sem eiga að taka að sjer mælingarnar.