22.09.1919
Neðri deild: 70. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Frsm. (Pjetur Ottesen):
Eins og háttv. þingdm. sjá, hefir Ed. enn einu sinni gert þá breytingu á frv. þessu, að hún hefir fært 1. gr. í sama form og hún var í upphaflega frá Ed.
En nefndin hjer flytur brtt. um að setja hana aftur í sama form og hún var samþ. í áður hjer í Nd., svo að þessi tvö frv., siglingalögin og skrásetningarlögin, geta þá orðið samferða í Sþ., enda hefi jeg sjeð, að þau eru bæði komin á dagskrá þar á morgun.