23.07.1919
Efri deild: 14. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

29. mál, siglingalög

Frsm. (Karl Einarsson):

Jeg vil að eins geta þess, að sjávarútvegsnefndin hefir komið sjer saman um að biðja hæstv. forseta að sjá um, að leiðrjett verði prentvilla í 2. og 4. gr. frv. í stað orðanna: „strikað út af skránni“ komi „strikað út úr skránni“. Er þetta eingöngu gert til samræmis því að hvorttveggja má teljast rjett.