19.09.1919
Efri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (127)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Halldór Steinsson:
Jeg vil að eins leiðrjetta misskilning, sem fram kom hjá hæstv. fjármálaráðherra (S. E.), þegar hann sagði að launalögin mundu skapa 2 milj. kr. útgjaldaauka. En sannleikurinn er sá, að eftir því, sem næst verður áætlað, er þessi útgjaldaauki talinn 1 milj., og munar það ekki litlu.
Í öðru lagi vil jeg benda á einn nýjan tekjuauka, sem jeg heyrði hv. frsm. (M. T.) ekki telja með, en mundi þó breyta allmjög útliti fjárlaganna, og það er vörutollurinn. Ef hækkunin á honum verður samþ., og við því búast víst allir, nemur hún ca. ½ milj. kr.
Það verður því ekki annað sagt en að þrátt fyrir launalögin verði fjárlögin eftir öllum vonum, ef þessar tekjuhækkanir ná fram að ganga.