01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1577 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Forseti:

Það hefir verið hagað svo til, að slík mál sem þessi, einkum stjórnarskrármálið og launamálið, gætu orðið afgreidd frá þessari deild og komin til Ed. fyrir 2. umr. fjárlaganna. Nú er enn fremur liðinn sá lögákveðni tími, sem þingið má standa, og treysti jeg mjer því ekki til að taka málið út af dagskrá. Hins vegar mun jeg ekki standa á móti því ef deildin æskir þess.