01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1578 í B-deild Alþingistíðinda. (1325)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Sigurður Stefánsson:
Jeg á brtt. á þgskj. 604. ásamt fleirum hv. deildarmönnum.
Eins og kunnugt er, kom fram önnur brtt. við 2. umr., sem fór fram á fjölgun þm., en sú brtt. var feld. Þessi brtt. fer líka fram á fjölgun, en helmingi minni en nú, sem feld var.
Þessi brtt. fer fram á, að þingmönnum verði fjölgað um 4, og er ætlast til, að 2 verði kosnir óhlutbundnum kosningum og 2 hlutbundnum Og jeg játa, að við höfðum það í huga með óhlutbundnu kosningunum, að Reykjavík gæti fengið 2 þm. í viðbót. Því að við lítum svo á, að þar kenni misrjettis, að láta langstærsta kjördæmið á landinu ekki hafa nema 2 þm. Það er okkar álit, að hvað sem annars megi um Reykjavík segja, þá er hún þó höfuðstaður landsins, og það verður að teljast rjett að sýna höfuðborginni sanngirni í máli sem þessu. Flestum þjóðum þykir vænt um sína höfuðborg og reyna að hlynna að henni, en okkur finst það lýsa ímugust á Reykjavík að unna henni ekki jafnrjettis við önnur kjördæmi landsins. Og þótt Reykjavík fengi 2 þm. í viðbót, ljeti ekki nærri, að hún hefði jafnrjetti við önnur kjördæmi; til þess ætti hún af hafa 6 til 7 þingmenn.
Þessi krafa frá Reykjavíkur hálfu hefir verið lengi uppi, og okkur finst hún vera svo sanngjörn, að fulltrúar þjóðarinnar geti ekki neitað henni ár eftir ár.
En svo er líka farið fram á, að þingmönnum, sem kosnir eru hlutbundinni kosningu, sje fjölgað um 2. Jeg lít svo á, að þeir sjeu nauðsynlegir, en sjeu nú hins vegar of fáir. Við álítum, að Alþingi, sem öðrum þjóðþingum, sje nauðsynlegt, að því sje með stjórnarskipunarlögum trygt nokkurt íhald í landsmálum gagnvart framsóknarstefnunni. Þessar stefnur eru báðar jafnnauðsynlegar og mega ekki hvor án annarar vera. En hins vegar er í stjórnarskránni lítið gert til að tryggja jafnvægið milli þeirra.
Jeg segi ekki, að gætni og íhald geti ekki verið í þinginu, þó að allir þingmenn væru kosnir óhlutbundnum kosningum. En þó tel jeg meiri tryggingu fyrir því, að dálítið íhald eigi sjer sæti á þingi, með þeim landskjörnu þingmönnum heldur en þeim, sem kosnir eru óhlutbundnum kosningum. Einkum held jeg að þetta eigi rót sína að rekja til þess, að aldur þeirra, sem kjósa í hlutbundnum kosningum, er hærri en hinn almenni kosningarrjettaraldur. Jeg skal taka það fram, að jeg legg mjög mikið upp úr þessu. Jeg hygg, að flestir sjeu á einu máli um það, að 35 ára kjósandinn hafi aflað sjer fastari og ákveðnari skoðana á öllum þjóðfjelagsmálum heldur en 25 ára kjósandinn, sem í rauninni er naumast kominn af unglingsaldrinum. Þess er líka að gæta, að maður, sem hefir náð 35 ára aldri, er vanalega orðinn talsvert rótfastari í landinu heldur en hinn. Það má ganga út frá því, að hann hafi stofnað heimili og tekist á hendur ýms trúnaðarstörf, sem 25 ára manni er síður trúað fyrir. Má og gera ráð fyrir, að hann hafi ríkari ábyrgðartilfinningu fyrir að rækja vel þjóðfjelagsskyldur sínar heldur en 25 ára kjósandinn, sem er nýliði í þjóðfjelaginu. Nú skal enginn halda, að jeg segi þetta þeim yngri til lasts, þótt jeg telji hann rótminni í þjóðfjelaginu. Að þessu leyti tel jeg meiri tryggingu fyrir því, að 35 ára kjósandinn fari skynsamlegar með atkvæði sitt heldur en hinn, sem er 25 ára. Auk þess er ekki rjett að ganga þegjandi fram hjá því, að hinn síaukni kosningarrjettur hefir hjá oss verið veittur alveg óbeðið, eða án þess að nokkrar verulegar óskir hafi heyrst frá þjóðinni. Og óneitanlega væri þeim, sem hefðu barist fyrir að fá þennan rjett, betur trúandi fyrir að fara vel með hann heldur en hinum, sem hann hefir verið veittur óbeðið, og án þess að nokkur vissa væri fyrir því, að þeir kærðu sig nokkra vitund um hann.
Við flm. þessarar brtt. álítum því ekki heppilegt, að fjölgað sje þingmönnum, kosnum óhlutbundnum kosningum, án þess að hinum landskjörnu sje líka fjölgað. Margir hafa haldið því fram, að hinir landskjörnu ættu að vera enn fleiri, og var hjer till. á dögunum, sem fór fram á, að þeir yrðu 12, fyrir 6. En hjer er að eins farið fram á að bæta 2 við. Satt að segja býst jeg nú varla við, að þessi till. okkar verði samþ., þó að mjer hins vegar þyki það æðislæmt, vegna Reykjavíkurbæjar. En hvað sem því nú líður, þá vænti jeg þess, að hv. þm. hugsi sig vel um áður en þeir fella brtt. okkar við 27. gr. Þessi brtt. fer fram á það, að kjörtími hinna landskjörnu sje óslitin 8 ár, og ekki sje skift um á því tímabili, í staðinn fyrir að helmingur þeirra fari frá 4. hvert ár. Færi nú svo, að landskjörnir þingmenn yrðu ekki nema 6, hljóta allir að sjá, hvílíkur hjegómi það er að tvískifta kosningu þeirra og setja, sem maður segir, alt landið á annan endann 4. hvert ár fyrir eina 3 þingmenn. Og það um hábjargræðistímann. Mig skyldi ekki undra, þótt margur hugsaði eitthvað á þá leið, að ekki væri mikill skaði skeður, þó hann kysi ekki, þar sem um eina 3 menn sje að ræða. Vafalaust yrði þetta til að draga mjög úr áhuga fyrir kosningunum. Að endingu vil jeg vænta þess, að hv. deild samþykki þessa till. okkar, þó aldrei nema hún geti ekki aðhylst hina.