03.09.1919
Efri deild: 47. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er ekki til annars en tafar að fara að ræða um málið hjer í þessari háttv. deild við 1. umr.

Skal jeg því að eins drepa lauslega á brtt. þær, sem gerðar hafa verið á frv. í háttv. Nd. og ástæða er til að nefna. — En áður en jeg sný mjer að þeim skal jeg geta þess, að það var rjett, sem hæstv. forseti sagði viðvíkjandi fyrirsögn frv. Jeg hafði við samning frv. í fyrstu skrifað: frumvarp til stjórnskipunarlaga, en þá hefði orðið að taka það sjerstaklega fram í formála, að lögin skyldu heita: „stjórnarskrá Íslands“. Eftir viðtal við íslensku nefndarmennina í dansk-íslensku ráðgjafarnefndinni breytti jeg fyrirsögn frv., þar sem álit þeirra var á þá leið, að það skifti ekki máli, hvort orðið stjórnarskrá eða stjórnskipunarlög væri notað. Hæstv. forseti hefir nú einnig úrskurðað á þessa leið, svo óþarfi er að tala meira um það.

Breytingar þær, er háttv. Nd. hefir gert á frv., eru fremur litlar, að sleptri breytingunni á 29. gr. 13. gr. tel jeg lakari eftir breytinguna í Nd., en þar er ákvæðinu um atkvæðagreiðslu ráðherra á ráðherrafundum slept. Jeg tel þessa tillögu háttv. Nd. hafa gert það að verkum, að betra sje að sleppa ákvæðinu gersamlega. Ráðherrafundir hafa, þegar ákvæðinu um atkvæðagreiðsluna er slept, enga þá þýðingu, er heimili ákvæði um þá sett í stjórnarskrána. Skýt jeg þessari athugasemd til háttv. stjórnarskrárnefndar. Ef háttv. nefnd vill eigi hafa atkvgr. sem slíkar, má í stað þess fyrirskipa, að bókað sje álit hvers ráðherra. Mun það vera í samræmi við stjórnarskrár annara ríkja, því að ákvæði um atkvæðagreiðslur mun að eins vera í nýjustu stjórnarskrám. En í praxis eru atkvæðagreiðslur viðhafðar, að minsta kosti þegar konungur er ekki viðstaddur. En þetta er ekki svo mjög áríðandi, því framkvæmdin skiftir svo miklu í þessu efni.

Þá er breytingin á 29. gr., um að 5 ára búseta skuli gerð að skilyrði fyrir kosningarrjetti. Skal jeg ekki að svo stöddu máli fara neitt út í það atriði sjerstaklega. Þó finst mjer ákvæðið um, að ekki slíti það heimilisfestu manns, þó hann dveljist erlendis við nám eða til lækninga athugavert. Vona jeg, að hv. nefnd taki það ákvæði til athugunar, því það kemur ekki heim við ákvæðin í lögunum um ríkisborgararjett, sjerstaklega ákvæðið um sjúklingana. Skal jeg ekki fara frekar út í þetta atriði, en beiðast þess, að nefndin taki til athugunar breytingu þá, er hv. Nd. gerði á 29. gr., þess efnis, að það sje skilyrði kosningarrjettar að skilja og tala íslenska tungu sæmilega. Tel jeg þetta brot á sambandslögunum.

Þá getur verið álitamál um það, hvort þing skuli koma saman á sumrum eða vetrum, og má segja margt með og móti hvorutveggja. Hv. Nd. hefir með miklum atkvæðamun ákveðið, að þingið skuli koma saman á vetrum, en eins og jeg sagði áðan, getur altaf verið deilumál, hvort hentara sje.

Að öðru leyti finn jeg ekki ástæðu til að fara út í frv. fyr en hv. nefnd hefir tekið það til íhugunar.