15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1617 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Frsm. (Karl Einarsson):
Eins og hv. þingdm. er kunnugt, hefir samvinnunefnd beggja hv. deilda unnið að þessu máli síðan í þingbyrjun, og er álit hennar prentað á þgskj. 514. Nefndin bar fram allmargar breytingar við stjórnarskrána, en flestar þeirra voru að eins orðabreytingar og mjög fáar efnisbreytingar. Till. nefndarinnar eru prentaðar á þgskj. 504, og voru flestar þeirra samþyktar í hv. Nd., svo að stjórnarskráin liggur nú að mestu fyrir eins og nefndin lagði til. Það er því ekki ástæða til að fjölyrða eða rekja frekar brtt. nefndarinnar þar, enda vænti jeg, að allir hv. þm. hafi fylgst með umræðunum um málið. Síðan málið kom hingað hefir nefndin átt hjer fundi með sjer um það, og hefir hún orðið ásátt um að bera fram tvær brtt. við frv. Fyrri brtt. er gerð af samkomulagi við meiri hluta nefndarinnar, þar sem hann fellur frá búsetuákvæðum sínum, en ágreiningurinn um það og rök á báða bóga eru skýrt tekin fram á þgskj. 514, svo það er óþarfi að fara frekar út í það mál hjer, en minni hluti nefndarinnar hjer og meiri hluti samvinnunefndarinnar heldur fast við skoðun sína um það. Annars hefir minni hluti nefndarinnar gengið inn á fyrri brtt. á þgskj. 770, með þeirri skýringu, sem tekin er fram í nál., eða með því að þar sje ekki um annað að ræða en það, sem er lög eða venja. Eftir lögum um ríkisborgararjett, sem hv. þing hefir nú samþykt, kemur þetta og skýrt fram í 9. og 11. gr., því þar er tekið fram, að svona dvöl gefi engum rjett, og þá er ekki nema eðlilegt, að henni fylgi enginn rjettindamissir í heimalandinu. Það er ljóst, að þegar viðkomandi menn ekki vinna neinn borgaralegan rjett eða borgaraleg rjettindi, þá geta þeir ekki mist þau, er þeir hafa. Með þetta fyrir augum getur minni hlutinn fallist á þetta, og það þeim mun fremur, þar sem meiri hluti nefndarinnar heldur fram sömu skoðun um þetta. Meiri hluti samvinnunefndarinnar ætlaði sjer aldrei að setja neinar nýjar reglur um þetta eða útfæra eldri reglur, heldur að eins að taka af öll tvímæli um það.
Nefndin kom sjer saman um að gera 2. brtt. á þgskj. 770, um að fella niður íslenskuþekkingu sem skilyrði fyrir kosningarrjetti. Nefndin gerir þetta ekki að kappsmáli, enda hefir till. ekki legið fyrir henni með þessu orðalagi. En nefndin lítur svo á, að ef þetta atriði ætti að hafa raunverulega þýðingu eða útfæra það strangt, þá yrði það erfitt viðfangs. Nefndin telur víst, að þeir Danir, er mundu ílengjast hjer, mundu fljótt læra málið svo, sem nauðsynlegt yrði talið, en þessi till. nær eigi nema til Dana, því annara þjóða menn, er setjast hjer að, þurfa að fá rjett innborinna manna, og hann verður að veita með lögum, til þess að fá hjer kosningarrjett.
Nefndin hefir ekki sjerstaklega athugað brtt. á þgskj. 783, frá hv. þm. Snæf. (H. St.), en þar sem lík till. þessari var feld í hv. Nd., þá eru forlög hennar ljós. Í þessari till. er enn fremur mælt svo fyrir, að setja megi með sjerstökum lögum frekari skilyrði eða setja lengri búsetuskilyrði. Þessu get jeg ekki fylgt. Jeg tel sjálfsagt, að stjórnarskráin ákveði til fullnustu, hvaða reglur eigi að gilda um þetta, en það sje með öllu óhafandi, að Alþingi geti á ári hverju verið að breyta þessu fram og aftur eftir geðþótta sínum.
Í síðustu 100 ár hefir verið unnið að því í öllum menningarlöndum heimsins að tryggja mönnum almennan borgararjett, og samkvæmt því á þetta atriði að vera fastákveðið í stjórnarskránni.
Nefndin hefir heldur ekki tekið afstöðu eða haldið fund um brtt. á þgskj. 706, um að þing sje annaðhvert ár, í stað ár hvert, eins og frv. gerir ráð fyrir.
Þetta atriði var rætt í samvinnunefndinni, en hún vildi ekki taka það upp í till. sínar, og sjest á því skoðun hennar á málinu, og till. um þetta var feld með miklum atkvæðamun í hv. Nd.
Um brtt. á þgskj. 771 er svipað að segja og um till. á þgskj. 783, að ef hún yrði samþykt, væri engin föst skipun á Alþingi; þá mætti breyta kjördæmaskipuninni, þingmannatölunni, deildaskipuninni, og með nægilega mikilli frekju mætti jafnvel leggja alveg niður aðra deildina. Yfirleitt mætti umsnúa þessu á alla kanta, og væri því í sannleika varhugavert og syndsamlegt að hafa ekkert fast form í stjórnarskránni fyrir svo virðulegri og ágætri stofnun sem hinu háa Alþingi.
Um brtt. á þgskj. 784 er það að segja, að það eru frekast orðabreytingar, eftir því sem jeg hefi athugað, og jeg held allar til bóta.
Svo hefi jeg ekki meira að segja.