15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1620 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Magnús Kristjánsson:
Jeg kann ekki við það, að láta þetta mál fara svo út úr deildinni, að jeg minnist ekki á það fáum orðum, og það því fremur, sem jeg er alls ekki ánægður með þá meðferð, sem það hefir fengið í þinginu. Að vísu hefir það verið svo fyrir mjer, að jeg hefi oftast reynt að verja gerðir þingsins jafnvel þó að jeg hafi ekki ávalt samþykt það, sem ofan á hefir orðið. En í þessu máli treysti jeg mjer ekki til að verja gerðir þingsins, það sem af er, þótt jeg feginn vildi.
Jeg hafði búist við því, að þingið teldi sjer fyrst og fremst skylt að ganga svo frá stjórnarskránni, eða þessum grundvallarlögum, að þau væru viðunandi um langan tíma, svo ekki þyrfti sí og æ að vera að breyta þeim. En hjer skortir mikið á.
Breytingarnar, sem samvinnunefndin öll gat orðið sammála um, eru flestar mjög lítilvægar, og getur jafnvel leikið vafi á því, hvort þær eru allar til bóta. En þegar til þess kom að athuga þau atriði, sem voru grundvallaratriði og verulegt gildi höfðu fyrir framtíðina, þá var samleiðinni lokið. Um þau atriði, sem máli skifta, má segja, að skoðanirnar voru eins margar og mennirnir í nefndinni. En augljóst er, að ekki er þetta heppilegt í öðru eins stórmáli og hjer er um að ræða.
Jeg skal nú leyfa mjer að fara örfáum orðum um tvö atriði sjerstaklega, þau sem mestum deilum hafa valdið, sem sje 26. og 29. gr.
Fyrst skal jeg þá snúa mjer að 29. gr., þó hún sje síðar í röðinni, því jeg álít það skifta minna máli, hvað þar verður ofan á, því þar er vitanlega að eins deilt um form, en ekki efni, því báðir nefndarhlutarnir hafa tekið það skýrt fram, að þeir sjeu ráðnir í því að setja fullnægjandi tryggingarskilyrði gegn innstreymi útlendinga, svo ekki spillist þjóðernið, tungan eða stjórnmálastarfsemin. Hjer er því að eins að ræða um mismunandi leiðir að sama marki.
Eins og kunnugt er, hafði stjórnarfrv. gert ráð fyrir eins árs búsetu. Öllum eru augljósar þær ástæður, sem voru fyrir þessu. Menn álitu enga slíka innstreymishættu yfirvofandi, en hins vegar óhæft að hafa búsetuna svo langa, að Íslendingar sjálfir, sem ytra dvelja, væru gerðir að nokkurskonar útlögum, eða fyrirbyggja innflutning þeirra með óþarflega ströngum skilyrðum. Það virðist því svo, sem nefndinni hefði átt að vera hættulítið að hallast að þessu upprunalega ákvæði, og það því fremur, sem minni hl. vildi gera það til samkomulags að ganga nokkru lengra og aðhyllast 2 til 3 ára búsetuskilyrði. En það leit svo út, sem fyrirfram væri ákveðið, að meiri hlutinn vildi alls ekki samkomulag. Má ske hefði þó sumum fundist þessu bót mælandi, ef minni hl. hefði ekki gert enn þá frekari tilraunir til samkomulags, sem sje með því, að hann vildi setja inn í kosningalögin enn frekari tryggingarákvæði, bæði að því er snertir dvalartímann og þekkingarskilyrði. Með þessu hefði öll hætta átt að vera útilokuð. En meiri hl. vildi samt ekki samkomulag
Svo nú þykir mjer úr vöndu að ráða, og svo er um marga fleiri. Því hjer hefir samvinnustirðleiki meiri hl. komið málinu í ógöngur. Jeg veit sem sje, hvaða afleiðingar það getur haft, ef málið nær ekki fram að ganga, en mjer er hins vegar illa við að láta annan eins gallagrip fara frá þinginu og þessi stjórnarskrá er. Jeg hefi þess vegna ekki enn þá tekið ákveðna afstöðu til atkvgr. um málið.
Mjer finst það sem sje álíka viturlegt að setja þetta langa dvalartímabil sem skilyrði fyrir kosningarrjetti eins og ef einhver heimilisfaðir bannaði börnum sínum heimilisvist eða gerði þau arflaus, af því hann hygðist með því geta bætt úr ómannúðlegri meðferð á óskilgetnum börnum, sem hann hefði þó orðið að kannast við á sínum tíma. Því hjer er verið að útiloka Íslendinga frá sínu eigin landi, einungis af ótta — og það ástæðulausum ótta — við það, að aðrir muni njóta sömu rjettinda. Yfirleitt hefir þetta mál verið flutt meira af kappi en forsjá, en hins minna gætt, hvað væri heppilegast og rjettlátast.
Þá skal jeg minnast á seinna atriðið, 26. gr. Breytingarnar við þá grein höfðu að vísu allmikið fylgi ýmsra nefndarmanna, þó ekki gæti myndast nægur, samfeldur meiri hluti um það. Jeg játa það fúslega, að í mínum augum er þetta veigameira atriði en það fyrra, sem jeg talaði um, því hjer er um grundvallaratriði að ræða.
Öllum ætti að vera ljóst, hversu mikla þýðingu skipun þingsins hefir. Og enn þá meira vandamál verður þetta þegar kosningarrjetturinn hefir verið rýmkaður svo mjög, sem raun er á orðin, og þó það hafi verið rjett, og það jafnvel að rýmka hann enn þá meira. En öllum ætti að vera ljós nauðsyn þess, að val þjóðfulltrúanna takist sem best, þannig að til þess veljist hæfir menn og þjóðkunnir, sem fengið hafa reynslu í meðferð opinberra mála á þingi eða í hjeraði, og menn, sem komnir eru svo til vits og ára, að þeir hafi þá lífsreynslu, að þeim sje trúandi til að fara svo með mál þjóðarinnar, að þeim sje borgið, og að þeir geti komið í veg fyrir öll gönuskeið, sem rýmkaður kosningarrjettur gæti haft í för með sjer. Alt þetta verð jeg að telja mjög þýðingarmikið, og ef einhver slík hugsun, um tryggingu gegn gálauslegri meðferð þjóðmála, hefði ekki legið bak við ákvæðin um landskjörið, væri það beinlínis tilgangslaust. Að vísu fekst þessu ákvæði, um landskjörið, ekki hrundið í það horf í upphafi, sem bæði jeg og margir aðrir töldu æskilegast. En þá var tekið það, sem næst fór, í von um, að seinna mundi hægt að kippa þesu betur í lag. En hjá sumum, t. d. meiri hlutanum, virðist þó afturför í þessu efni, þannig, að sumir virðast jafnvel helst á því máli að afnema alveg landskjörið.
Þessi skoðun held jeg þó að eigi ekki mikil ítök í þjóðinni. Það er miklu fremur einlægur vilji flestra bestu mannanna, sem mest skyn bera á þjóðmál, að fjölga landskjörnu þingmönnunum. Það, að þetta verði til að auka íhald eða afturhald, eins og það er kallað, er fjarstæða, sem ekki ætti að þurfa að eyða orðum að, og reynslan hefir þegar hrakið.
Enn fremur sýnist það nokkuð afkáralegt, og jafnvel hálfgerður barnaskapur, að vera að setja þetta stóra kosningabákn af stað til þess að kjósa þrjá menn. Það er líka augljóst, að meðan mennirnir eru svo fáir, sem kosnir eru, svarar hlutfallskosningin aldrei til þess, sem í orðinu felst og til var ætlast, því mesta misrjetti hlýtur að koma fram í hlutfallinu milli fulltrúanna, sem hver flokkur kemur á þing, þegar þeir eru svona fáir, og það jafnvel þó flokkaskipunin væri heilbrigð, að jeg ekki tali um misrjettinn, sem hlýtur að verða meðan flokkaskipunin er eins óheilbrigð og nú.
Breytingin væri til bóta því meira sem landskjörnum þm. væri fjölgað. En viðunandi væri, ef þeim væri fjölgað um helming. Þá gæti skapast nokkurn veginn eðlilegt hlutfall milli flokkanna.
Þá er kostnaðaraukinn, þetta handhæga meðal, sem svo margir grípa til, kjósendum sínum til geðs, að því er virðist. Jeg geri samt ráð fyrir, að kjósendum sje engin þægð í smásálarlegum sparnaði, þegar svona stendur á. Jeg get ekki hugsað mjer, að þjóðin sjái í kostnað, sem svarar launum eins embættismanns, þegar um stjórnarbót er að ræða. En þeir, sem eru með sparnaðarhugsanirnar í þessu sambandi, ættu ekki að gera það endaslept, heldur koma með frv. um breyting á kjördæmaskipuninni og fækkun kjördæmakosinna þingmanna. Þá mundi sjást, að sparnaðarhugur þeirra væri einlægur. En þetta er viðkvæmt mál. Sýslurnar vilja ekki missa þingmenn sína. Sýslutakmörkin eru að sumu leyti eðlileg takmörk. Það er ekki hugsanlegt, að höfðatalan ein verði nokkurn tíma lögð til grundvallar fyrir kjördæmaskipuninni. Staðhættir munu altaf verða að ráða miklu.
Ef menn nú reynast ófáanlegir til að fjölga landskjörnum þingmönnum vegna kostnaðaraukans, vil jeg benda á leið, þó að jeg geti búist við, að hún verði talin fjarstæða. Ef þjóðin telur sig ekki hafa ráð á að launa nauðsynlegum þingmönnum sínum, þá er þó ætíð það úrræði, að hinir landskjörnu þingmenn tækju engin laun fyrir starf sitt. Það mundi ekki vanta menn samt. Síst mundi það verða til þess að bestu mennirnir drægju sig í hlje. Svo mikla trú hefi jeg á ýmsum góðum mönnum, sem jeg þekki. Þetta verður kann ske skoðað sem spaug, en það er líka alvara.
Yfirleitt er jeg mjög óánægður með meðferð þessa máls hjer í þinginu. Jeg er enn óráðinn í því, hvort jeg greiði atkvæði með eða móti frv. úr deildinni. Það hefir flogið fyrir, að sumir þeir þm., sem öflugast hafa barist fyrir 5 ára búsetuskilyrðinu og móti fjölgun þingmanna í Reykjavík og landskjörinna þingmanna, hafi ekki verið eins brennandi í áhuganum undir niðri og út leit fyrir. Þeir hafi þóst sjá hjer leik á borði með að afla sjer kjósendafylgis undir kosningarnar. Þetta má kalla skiljanlegar ástæður, þó hvorki sjeu þær góðar nje gildar. En þess verður maður að krefjast, að menn leiti sjer ekki þjóðhylli á annara kostnað, með því að flytja róg og dylgjur um menn, sem vilja landi sínu og þjóð alveg eins vel og þeir sjálfir. Annars er það hreinasta oftraust á heimsku og þroskaleysi þjóðarinnar að halda, að hægt sje að telja henni trú um, að þeir menn sjeu henni hættulegastir, sem vilja tryggja stjórnarfyrirkomulagið sem best, eins og minni hluti nefndarinnar leitaðist við að gera.