15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (1348)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Jóhannes Jóhannesson:
Það kemur nægilega skýrt fram í nál., að meiri hlutinn hefir engan veginn breytt skoðun sinni, og ástæðan til þess, að hann kom ekki fram með brtt. nú, er sú, að meiri hlutinn á þingi hefir lagt svo mikla áherslu á 5 ára búsetuskilyrðið, að engin von er um að fá því þokað. Þetta var meiri hluta nefndarinnar ljóst, og vildi hann því ekki stofna málinu í hættu með því að reyna að koma að brtt. Það er augljóst, að meiri hluti nefndarinnar verður að láta undan fyr eða síðar, og þá er best að gera það strax. En engum þeirra, sem eru sammála meiri hluta nefndarinnar, virðist þetta svo stórvægilegt atriði, að hann vilji til vinna að fella stjórnarskrárfrv. í heild sinni fyrir það.
Af þessum ástæðum kom mjer dálítið á óvart, þegar jeg sá brtt. háttv. þm. Snæf. (H. St.). Jeg hugsaði, að honum væri eins farið og okkur hinum, sem höfum ákveðið að láta þegar undan. Jeg skal enn geta þess, að nefndin hefir tekið skýrt fram, og leggur áherslu á, að hún álítur 5 ára búsetuskilyrðið engan veginn koma í bág við sambandslögin, en við nefndarmenn leggjum mikla áherslu á, að íslenskukunnáttuskilyrðið verði numið burtu. Eins og málið er vaxið, getum við ekki greitt atkv. með brtt. hv. þm. Snæf. (H. St.).