15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (1355)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Fjármálaráðherra (S. E.):
Háttv. þm. Ak. (M. K.) færði fram máli sínu til stuðnings — að því er mjer skilst — að erfitt myndi að leiðrjetta misrjetti það, er Reykjavík hefir orðið fyrir, að því er þingmannatölu snertir, ef brtt. hans og hv. 1. landsk. varaþm. (S. F.) yrði ekki samþ. Hv. þm. (M. K.) getur ekki verið alvara, þar sem einmitt er gert ráð fyrir, að tölu þm. megi breyta með einföldum lögum. (M. K.: Þetta er útúrsnúningur, sem jeg skal leiðrjetta seinna). Jeg vildi helst að háttv. þm. leiðrjetti strax, ef um misskilning er að ræða af minni hálfu.
Háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að deildarskipunin breyttist jafnt hvort landsk. þm. yrði fjölgað eða ekki, ef notuð væri heimild 26. gr. til að auka tölu kjördæmakjörinna þm. með einföldum lögum. Þetta er ekki rjett, því meðan tala landskjörinna þm. í Ed. er fastskorðuð er ekki hægt að gerbreyta eins deildaskipuninni og ef einnig mætti breyta tölu þeirra með einföldum lögum, eins og brtt. fer fram á.
Þá kemur aðalatriðið. Mjer skildist það hneyksla háttv. þm. (M. K.), að jeg játaði, að með aukinni tölu landskjörinna þm. gæti skapast íhald, sem orðið gæti hættulegt
Háttv. þm. má þó vera kunnugt um það, að í baráttunni, sem háð var út af núgildandi stjórnarskrá, var það talin aðalástæðan móti landskjörnum þm., að of mikið íhald mundi skapast, og að erfitt mundi verða að ráða við Ed. af þeim orsökum. Sú millileið var farin, að hafa landskjörna þingmenn ekki í meiri hluta í deildinni, því talin var hætta á, að örðugleikarnir, sem komið höfðu fram annarsstaðar vegna íhalds efri málstofunnar, t. d. í Danmörku, gæti einnig átt sjer stað hjer.
Við skulum taka dæmi. Ef samþykt verður að hafa kjörtímabil landskjörnu þm. 8 ár, gæti svo farið, að mál, sem hvað eftir annað væru samþykt í Nd., og það jafnvel með mjög miklum meiri hluta, gætu ekki náð fram að ganga vegna mótstöðu Ed. Og þó þingið væri rofið hvað eftir annað, og vilji þjóðarinnar kæmi skýlaust í ljós, gagnaði það ekkert vegna þess, að þingrof nær ekki til landskjörinna þm.
Og svo skulum við halda lengra. Nú gæti verið, að þingið vildi breyta stjórnarskránni, til þess að koma í veg fyrir þetta, en það myndi einnig stranda á sama skerinu, ef landskjörnir þm. stæðu á móti.
Hitt er annað mál, að nokkurt íhald sje í þessari deild, en til þess tel jeg nægilegt, að hún sje skipuð eins og hún er nú. Þar með er engan veginn sagt, að landskjörnir þingmenn sjeu altaf íhaldssamari en aðrir þingmenn, en eftir öllum atvikum eru meiri líkur til þess.
Þykist jeg þá hafa fært rök fyrir máli mínu, enda reynsla annara þjóða mín megin í þessu efni.
Um búsetuna skal jeg taka undir það með hv. þm. Ak. (M. K.), að fyrirsjeð er, hvernig henni verður ráðið til lykta, og er því engin þörf að ræða það atriði frekar.