15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1643 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)
5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
Magnús Torfason:
Það, sem jeg vildi segja, eru að eins nokkrar athuganir um 26. gr., með því að þræta hefir orðið um, hvernig beri að skilja hana. Það hefir verið föst trúarsetning, að tölu landskjörinna þingmanna væri ekki hægt að breyta nema með stjórnarskrárbreytingu. Það er fyrst nú nýlega, að menn hafa athugað þetta gjör. Var eðlilegt, að menn litu svo á, að eigi væri hægt að breyta þessu nema með stjórnarskrárbreytingu, því þessir háttv. þm. voru skarðfyllar konungkjörnu þm., og því gengið út frá því, að tala þeirra væri jafnóhagganleg og hinna konungkjörnu. En við vitum það, að skoðanir manna breytast með ári hverju, og það, sem hefir verið óskeikul trúarsetning manna í þúsundir ára, það getur verið rifið niður á svipstundu. Við höfum sjeð þessa dæmin síðustu árin, og því er ekki að furða þótt efasemdir rísi um þennan gamla skilning á greininni.
Ef greinin er athuguð nánar, þá er í fyrstu málsgrein tekið fram, að á þingi skildi sitja 40 þjóðkjörnir þingmenn, og að því megi breyta með lögum. Það mun nú enginn vilja neita því, að landskjörnir þingmenn sjeu hjer taldir með. Í 3. málsgrein er sagt, að kjördæmakosnir þingmenn skuli vera 34, en landskosnir þingmenn 6. og þar stendur ekki, að því megi breyta með lögum. Nú eru allir samdóma um að breyta megi tölunni 34. En jeg get ekki sjeð nein merki þess af orðalagi greinarinnar, að hún banni fremur að breyta tölunni 6 en tölunni 34, og það liggur í báðum greinunum, að þær eru miðaðar við töluna 40.
Þessi grein bannar heldur ekki, að landskjörnir þingmenn sjeu fleiri en 6.
Því ef svo hefði átt að vera, hefði greinin átt að vera orðuð á þann veg, að 6 þingmenn væru kosnir með hlutbundnum kosningum, en hinir í sjerstökum kjördæmum. Þá hefði greinin verið skýrt og skorinort orðuð, og ekki um neitt að villast.
Í þessari grein er enn ein tala, sem ekki er sagt að megi breyta með einföldum lögum. Sameinað Alþingi á að kjósa 8 menn til efri deildar, en það hlýtur að vera meiningin, að það megi breyta þessu með einföldum lögum. Það má vel hugsa sjer, að 16 þingmenn eigi sæti í efri deild, eins og till. hefir komið fram um, og þá hlyti að þurfa að kjósa 10 þingmenn til efri deildar. Þessi málsgrein hefði annars átt að vera eins orðuð og jeg tók áðan fram um tölu kjördæma- og landskjörinna þingmanna.
Jeg benti á það áðan, að það hefir verið trúarsetning, að eigi mætti breyta tölu landskjörinna þingmanna nema með stjórnarskrárbreytingu, en það er skrítið að skoða allar tölur í greininni breytilegar nema þessa. (K. E.: Þær eru bara afleiðing). Það má eins segja hið sama um töluna 6, að hún sje bara afleiðing. Að því er þetta snertir, gæti því verið hætta á, að hvert þing, sem vildi fjölga landskjörnum þingmönnum, teldi sig hafa fulla heimild til þess. Mjer finst því rjettast, að þessi grein væri tekin til nánari athugunar af nefndinni og að flutningsmenn geymdu brtt. sína um hana til 3. umr. Þingið getur tæplega verið þekt fyrir að skilja svo við þessa grein, er fjallar um svo mikilvægt atriði, að það orki mjög tvímælis, hvernig hún á að skiljast, því vitanlega var tilætlunin, að tölu landskjörinna þm. gæti ekki orðið breytt með almennum lögum.