18.09.1919
Efri deild: 59. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Guðmundur Ólafsson:

Jeg skildi í fyrstu ekki, hvað hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) fór, en svo lukust upp augu mín fyrir því, að hann væri að mæla á móti brtt., og virtist mjer aðalástæða hans vera sú, að stjórnin hafi slegið því föstu, að Alþingi skyldi haldið á hverju ári.

Þó að jeg geti ekki fallist á, að það sjeu nein óyggjandi rök fyrir nauðsyn á reglulegu Alþingi, að stjórnin hafi slegið þessu föstu, er þó þessi yfirlýsing gleðilegur vottur þess, að þau atriði geta komið fyrir, sem stjórnin er sammála um og heldur fram lengur en meðan hún er að koma þeim á pappírinn.

Hv. frsm. (K. E.) mælti aðallega á móti brtt. af þeim ástæðum, að nauðsyn bæri til, að Alþingi kæmi saman á hverju ári, sjerstaklega vegna fjármálanna. Jeg skal játa það, að þetta er helsta ástæðan móti brtt., en jeg tel, að ekki sje neitt sjerstaklega vandasamara að gera fjárhagsáætlun fyrir 2 ár eftirleiðis en verið hefir hingað til.

Þó að fjárlög væru sett fyrir eitt ár, myndi samt sem áður þurfa aukafjárlög, þótt fjárveitingarnar yrðu ef til vill færri á þeim. Annars hefir mjer virst svo, sem fjáraukalögin hafi jafnan gengið fram breytingalítið eða breytingalaust. Jeg fæ því ekki sjeð, að þetta sje nein ástæða móti brtt. vorri. En ekki undrar mig, þótt mótstöðumenn brtt. vildi gjarnan, að umræður um hana verði litlar og þögn komi í stað röksemda.