23.09.1919
Neðri deild: 71. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (1372)

5. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Frsm. (Benedikt Sveinsson):

Eins og nál. á þgskj. 930 ber með sjer, hefir hv. Ed. gert nokkrar breytingar á frv.

Er það þá fyrst, að ákvæðið um kunnáttu í íslenskri tungu er niður felt. Þetta var atriði, sem nefndin tók aldrei ákveðna afstöðu til, heldur hafði hver einstakur þm. óbundið atkvæði þar um, og svo er enn. Nefndin hefir ekki fundið ástæðu til að breyta þessu á ný, og þarf jeg því ekki að fjölyrða um það.

Sama er að segja um ákvæðið um heimilisfestuna. Breyting hv. Ed. á því var ekki talin efnisbreyting, og varð því samkomulag um það í nefndinni að samþykkja breytingu efri deildar með því fororði, er nál. greinir.

Þá hefir nefndin samþykt að bera fram nokkrar smábrtt., sem raunar eru ekki annað en breytingar á orðfæri. Eru þær fremur lítilsverðar, enda hafa sumir skrifað undir nál. með því fororði, að þeir gæti varla greitt þessum brtt. atkvæði. Er það heldur eigi svo rík sannfæring mín, að þær sje til bóta, að jeg geti mælt með þeim. Er þar fyrst, að í stað ,,lögráða“ komi ,,lögráður“. En nú heyri jeg hljóð úr horni, þar sem er háttv. 2. þm. Árn. (E. A. ) Mun þá verða ötullega fyrir þessar breytingu barist, og skal jeg spara mjer að gera það.

Hitt annað er svo lítilfjörlegt, að engu máli skiftir. Það má telja mesta fagnaðarefnið þessari hv. deild, að búsetuákvæðið hefir náð samþykki þingsins, og eigi að eins hv. deild, heldur allri hinni íslensku þjóð, sem ætla má að hefði tekið því illa, ef annað hefði orðið ofan á.