28.08.1919
Neðri deild: 48. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Sigurður Stefánsson:

Jeg hefi lítið að segja, því jeg get að mestu leyti verið ánægður með undirtektir hæstv. stjórnar undir ræðu mína. Það gladdi mig að heyra hæstv. forsætisráðherra (J. M.) lýsa því yfir að viðvíkjandi framtíð fulltrúans í Lundúnaborg yrði ráðfært sig við Alþingi og um framtíðarfyrirkomulag verslunarinnar er sama að segja, því hæstv. stjórn lýsti því yfir að um það yrði ráðfært sig við hæstv. Alþingi, hvort einokuninni yrði haldið áfram, eða þá að verslunin yrði gefin frjáls. Yrði því einokuninni ekki haldið áfram, nema samþykki þingsins fengist. Þetta er fullkomlega rjettmæt afstaða, og vil jeg því að eins vara stjórnina við þeirri hættu, sem stafað getur af vöruskorti ef kaupmönnum er ekki leyft að birgja sig upp nógu snemma, og ef stjórnin gengur ekki rösklega fram í því, að útbýta vörunni út um landið. Reynslan hefir sýnt, að þetta getur komið fyrir og þarf ekki annað en að benda á rúgmjölsskortinn í vor.

Hæstv. forsætisráðherra (J. M.) vildi mæla stjórninni bót með því, að þetta hefði engu síður komið fyrir þótt verslunin hefði verið frjáls, og er það hverju orði sannara, enda hafa kaupmennirnir oft fengið óþvegið orð í eyra fyrir slíka vanrækslu og tómlæti. En þó er nú þetta ekki alveg sambærilegt við það, að slíkt skuli koma fyrir hjá landsversluninni. Það er vitanlegt, að kaupmennirnir líta fyrst og fremst á sinn hag, það er því ekki nema skiljanlegt, að þeir vilji ekki birgja kaupstaðina svo að vörum, að þeir megi eiga það á hættu að liggja með vöruna sjer í óhag. Þeir verða að sjá um að selja vöruna sem fyrst, til þess að geta fengið sitt. Aftur er öðru máli að gegna um verslun stjórnarinnar. Hennar skylda er fyrst og fremst að sjá landsmönnum fyrir nægum vörum og búa svo um hnútana, að aldrei verði vöruskortur. Einkum hvílir þó þessi skylda þungt á henni, þegar hún er ein um hituna. Jeg vil þó alls ekki ámæla stjórninni fyrir það, að þetta hefir henni ekki tekist sem best, því henni hefir tekist vonum betur. En maður verður líka að taka hart á, ef illa tekst, og sjerstaklega ef illa tekst með vöru, sem landsverslunin hefir einokun á. Maður hefir dæmið fyrir sjer, þar sem sykureklan var í vor. Eins og kunnugt er, gaf stjórnin þá verslun frjálsa, en þá brá svo við að fyrst fór að bera á sykureklu. Jeg veit ekki hverjum er um að kenna en það veit jeg að kaupmenn kenna stjórninni.

Það gladdi mig að heyra hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) lýsa því yfir, að hann væri því fylgjandi, að verslunin yrði gefin frjáls, svo að heilbrigð samkepni gæti byrjað milli kaupmanna og kaupfjelaga. Þetta er því gleðilegra sem jeg sje af þessum orðum hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) að hann vill engin mök eiga við blað það, sem þó er talið málgagn hans. Það blað hefir reynt að kveikja hatur og alið á rógi milli þessara tveggja stefna, og svo langt hafa þessar ósvífnu ofsóknir gengið, að þær hafa ekki að eins verið ósæmilegar gagnvart kaupmannastjettinni heldur hafa þær líka lent á mönnum, eins og t. d. sjálfum mjer, sem ekki er nein ástæða til að væna um taglhnýtingsskap við kaupmenn. Þessar stefnur eru báðar nauðsynlegar, og hefi jeg aldrei hallað einu orði á þær hvoruga enda ann jeg þeim báðum, í frjálsri og heiðarlegri samkepni eru þær þjóðinni jafngagnlegar og nauðsynlegar. En verði önnurhvor þeirra einvöld í verslun landsins, þá er einokunarhættan fyrir dyrum og einokun samvinnufjelaga er ekki hóti betri en einokun kaupmanna fyrir viðskiftalíf þjóðarinnar. Þessir báðir möguleikar eru til og því meiri ástæða er til að óttast þetta sem alið er á rógi og úlfúð milli þessara tveggja stefna. Það gladdi mig því að heyra hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) afneita þessu blaði, sem stundar þá óþokkaiðju, að kveikja ófrið og úlfúð milli kaupmannastjettarinnar og samvinnufjelagsskaparins. Jeg ann hæstv. atvinnumálaráðherra þeirrar hvíldar, sem hann nú hefir sótt um, og það gleður mig, að hann svona undir það seinasta. telur sjer ekki sæmandi að kannast við „Tímann“ sem sitt málgagn í þessu máli; af því er auðsætt að hann ber kinnroða fyrir framkomu þessa blaðs.