08.08.1919
Efri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Frsm. meiri hl. (Guðmundur Ólafsson):

Eins og nál. ber með sjer, hefir nefndin ekki getað orðið sammála. Formaður hennar hefir skrifað undir með fyrirvara. Frv. þetta er fram komið eftir ósk ráðuneytisins, og er tilgangur þess einungis sá, að ná upp halla þeim, er landsverslunin hefir orðið fyrir vegna saltverslunarinnar, enda sjest það glögt á frv., þar sem ætlast er til, að það falli úr sögunni þegar þessu takmarki er náð.

Í Nd. var tollurinn ákveðinn 12 kr. á smálest. en eftir beiðni Fiskifjelags Íslands hefir hann verið færður niður í 8 kr.

Verði frv. samþ., má gera ráð fyrir því, að hallinn náist upp á 4 árum; virðist það sæmilega langur tími og varla gerlegt að hafa hann lengri.

Athugandi er, að þótt tollurinn sje ákveðinn 8 kr. í frv., er hækkunin ekki nema 7 kr., þar sem nú er 1 kr. vörutollur á hverri smálest af salti, sem ætlast er til að falli niður, ef frv. þetta verður að lögum.

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða meira um frv. þetta, en vænti þess, að hv deild samþykki það eftir tillögum meiri hluta nefndarinnar.