08.08.1919
Efri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):

Út af því síðasta skal jeg taka fram, að jeg er ekki undir það búinn að koma fram með brtt. í dag.

Viðvíkjandi drætti vísa jeg því frá mjer og nefndinni í Ed., að við eigum nokkra sök á honum.

Ef kenna má einhverjum einstökum um drátt, þá er það stjórnin, sem á sök á honum. (Fjármálaráðh.: Nú, vegna hvers?). Jeg skal víkja að því. Þegar frv. kemur í fjárhagsnefnd frá stjórninni, er tollurinn 12 krónur á hverri smálest, og auk þess eilífur — tíma þeim, er lögunum er ætlað að hafa gildi, er ekkert takmark sett. Frv. skýtur því alveg út fyrir mark það, sem því er sett í greinargerðinni.

Vænti jeg þess, að enginn lái okkur slordónunum, þótt við viljum ekki eiga eftirleikinn með að fá lögin numin úr gildi.

Drátturinn er því allur stjórninni að kenna.

Frv. skýtur enn yfir markið.

Í upphafi er eins og stjórnin hafi ætlast til, að sjávarútvegurinn borgi alt á einu ári. Eins og vænta mátti, er sagt við sjávarútveginn: Upp með budduna og ekkert mas.

Hann á ekki einungis að borga, heldur fær hann alls engan gjaldfrest.

Í því sambandi skal jeg geta þess, að jeg skil ekki hvað á því liggur að innheimta þetta tjón svona fljótt, nema íþyngja eigi sjávarútveginum á annan hátt, þegar þetta er greitt.

Mjer skilst, að það komi nokkurn veginn í sama stað niður fyrir ríkissjóð, hvort þetta er greitt á einu eða þrem árum — ef hann er ekki alveg á röndinni — þar sem stjórnin mun gæta þess, að láta sjávarútveginn greiða vexti af þessari upphæð.

Það hefir verið sagt, að skattur þessi sje ekki annað en endurgreiðsla á lánum, en jeg get ekki fallist á að skoða landsverslunina frá því sjónarmiði. Að vísu mun hún hafa verið stofnsett til að hjálpa atvinnuvegunum, en ekki er hægt að segja, að skattur, sem lagður er á til að vinna upp tap á henni, sje endurgjald láns.

Jeg stend við, að eftir því, sem nú er orðið, má búast við, að tekinn verði drjúgur skildingur úr vasa sjávarútvegsins, og býst jeg við, að eins fari og með síldarhjálpina í fyrra, að ríkissjóður reikni sjer eitthvað fyrir ómak sitt.

Eins og sjest í greinargerð frv., er þetta ekki meiningin, og mun jeg því koma með brtt. við 3. umr.

Hvað ræðu hv. þm. Ak. (M. K.) viðvíkur, átti jeg ekki við saltið frá 1917. Mig minnir, að í byrjun stríðsins hafi landssjóður flutt inn bæði salt og kol, og býst jeg við, að þær vörur hafi verið seldar með ágóða. Núverandi fjármálaráðherra er ekki að kenna, að ekki var haldið lengur áfram á þeirri braut.

Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) var að tala um linkind. Það verður eitthvað annað uppi á teningnum, ef menn bera þetta saman við það, sem gerist í öðrum löndum; jeg þekki ekki dæmi þess þar, að menn reyni til þess að ná upp tjóni því, sem leitt hefir af ófriðnum, á 1–2 árum; t. d. dettur Dönum ekki í hug að ná upp slíku tjóni strax, þó að skifti fáeinum miljónum króna.