08.08.1919
Efri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Karl Einarsson:

Jeg stóð að eins upp til þess að reyna að sýna fram á, að reikningur sá, sem hæstv. fjármálaráðherra kom fram með um hallann, sje ekki rjettilega útfærður. Í frv. er gert ráð fyrir 383 þús. kr. halla, þar með að sjálfsögðu talin rýrnun og kostnaður við sölu; meiri halla þarf því ekki að gera ráð fyrir, nema því að eins að saltið falli niður úr 150 kr. Samt segir hæstv. fjármálaráðh. (S. E.), að allur hallinn muni verða um 600 þús. kr., og gerir ráð fyrir því, að 4 ár þurfi til að greiða hann með 8 kr. tolli á tonnið. Þetta getur ekki verið rjett. Ef miðað er við saltflutning hingað 1918 og gert er ráð fyrir, að 20 þús. tons flytjist inn á ári, þá þarf ekki nema 5 kr. toll á tonnið til þess að hallinn, þessar 383 þús. kr., jafnist á 4 árum. Þess vegna ætti að vera nægilegt að hafa tollinn ekki hærri. Stjórnin hefir sem sje lýst yfir því, að nægilegt sje að borga hallann á 4 árum, og á því er frv. bygt. Jeg mun því við 3. umr. koma með brtt. í þessa átt, þ. e. að tollurinn verði 5 kr. Annars skal jeg taka það fram, að jeg greiði nauðugur atkvæði með frv. þessu, og þó því að eins að brtt. mín verði samþykt. Jeg get ekki annað en tekið undir það með hv. 2. þm. G.-K. (K. D.), að hjer sje ekki um lán handa sjávarútveginum að ræða, heldur eigi landið í heild sinni jafnan hlut að máli. Það mundi hafa lækkað í landssjóði, bönkum hjer liðið illa og dofnað yfir fyrirtækjum þessa lands, ef sjávarútvegurinn hefði fallið niður. Þetta segi jeg ekki af því, að jeg vilji í nokkru halla á landbúnaðinn, enda hefi jeg ekki sýnt mig að því að vilja halla á hann nje aðrar atvinnugreinar, sem miða til þess að halda þjóðinni í tölu siðaðra þjóða. En það er óneitanlegt, að frá sjávarútveginum stafar meiri hluti fjár landssjóðs.

Jeg fæ ekki skilið það, að ekki standi á sama, hvort hallinn er borgaður á 4 eða 6 árum, en mjer er nær að halda, að með áætlun stjórnarinnar verði hann greiddur á 3 árum. Það eru engar líkur til þess, að saltið lækki, meðan landsverslunin hefir sölu þess á hendi. Fragtir munu ekki falla á þessu ári. Eftirspurn eftir skipum er svo mikil, jafnvel seglskip er erfitt að fá, og þau halda frögtunum jafnhátt sem gufuskipin.

Hitt er rjett, að ef afgreiða á þetta frv. nú, þá er full ástæða til þess að gera það þegar í stað, af ástæðum, sem liggja í augum uppi og teknar hafa verið fram.