08.08.1919
Efri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skil ekki niðurstöðu þá, er hv. þm. Vestm. (K. E.) komst að. Ef fluttar eru inn 20 þús. tonn á ári, og 7 kr. tollur á tonninu, þá koma inn 14 þús. kr. á ári, og 4X140 eru 560, svo það er auðsætt, að eftir frv. þarf tæp 4 ár til að greiða tollinn. Verði innflutningurinn meiri, tekur það vitanlega styttri tíma.

Annars var ræða hv. 4. landsk. þm. (G. G.) svo sláandi og sannfærandi um kjarnaatriði málsins, að jeg tel víst, að það hafi sannfært hvern skynsaman mann. er á hlýddi.