08.08.1919
Efri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)

66. mál, aðflutningsgjald af salti

Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):

Mjer skilst svo, sem hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) líti svo á, sem landsstjórnin hafi gert feikilegt góðverk, þegar hún sá um, að salt væri til, en jeg verð að líta svo á, sem það hafi verið hreint og beint skylda hennar, en frá einu sjónarmiði skil jeg þó þennan góðverknaðar hugsunarhátt. Það hafa komið fram raddir um að drepa þennan atvinnuveg. (Fjármálaráðherra: Hvar hafa slíkar raddir heyrst?). Þær hafa komið utan úr sveitum landsins, en jeg geng að því sem vísu, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sje ekki með því.

Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) vill halda því fram, að það hafi aldrei verið ætlun sín, að þessi tollur yrði eilífur. Ef svo er, þá er hann ákaflega óheppinn í orðalagi sínu: þarf í því efni ekki að benda á annað en 3. gr. í stjórnarfrv. Það er ljóst, að þar sem þar er gert ráð fyrir að fella niður vörutollinn, þá ætlast stjórnin beint til þess, að þessi skattur verði eilífur. Það mun enginn hafa að miklu, þótt hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) hefði góð og fögur orð um þetta á meðan hann var að smokka á gjaldinu. Og þótt núverandi fjármálaráðherra (S. E.) hafi fögur orð og mætan ásetning um þetta, þá býst jeg ekki við, að hann verði eilíflega fjármálaráðherra landsins, og það er alls ekki víst, að hann sitji í því sæti, þegar á að krefja gjaldið inn eða upphefja lögin, og því ofureðlilegt, að hv. Nd. setti tappa í neglugatið.

Jeg mótmæli því kröftuglega, að hjer sje um lán til sjávarútvegarins að ræða; þessi ráðstöfun var gerð fyrir heildina. Og upp í þennan halla mætti reikna tollinn á síldartunnum, en hann mun nema nær ½ milj. kr. (S. E.: Jeg efa það). Það verður ekki langt frá því, og svo græddi stjórnin á síldarkaupunum um 300 þús. kr., og það, sem græðist á öðrum lið sjávarútvegarins, ætti að mega draga frá tapi á hinum liðum hans.

Og þegar um lán er að ræða, þá verður ætíð að vera einhver lánardrottinn. Og hver er lánardrottinn hjer? Það er vitanlega sjávarútvegurinn. Hann hefir greitt svo mikið fje í ríkissjóð um fram það sem til hans hefir verið veitt, að það má segja, að hann eigi allan ríkissjóð, og meira að segja alt landið, þ. e. a. s. hinar opinberu eignir þess, því hann hefir greitt það alt og meira til. Það má því líta á þetta mál frá ýmsum sjónarmiðum. Þessi skattur er heldur ekki eðlilegur, og ef landsverslunin hefði beðið tap á einhverri vörutegund, sem landbúnaðurinn hefir notað aðallega, þá býst jeg ekki við, að meðhaldsmenn þessa máls hefðu viljað leggja tap það einvörðungu á landbúnaðinn. Það var t. d. tap á sykrinum; það er aðallega fyrir landbúnaðinn, en jeg hefi ekki heyrt neinn tala um sjerstakan toll í tilefni af því.

Við vitum, að Danir hafa þurft að leggja fram stórfje úr ríkissjóði sínum til styrktar ýmsu, en það er víst, að þeir ætla sjer ekki að ná því öllu upp á næstu árum, og víst er um það, að þeir ganga ekki lengra en það, að tekjur og gjöld vega salt í fjárlögunum.

Það má fyllilega gera ráð fyrir því, að sjávarútvegurinn aukist svo, að saltinnflutningur 1920 verði 40–50 þús. tonn, og ef reiknað væri með því, að hann verði 50 þús. tonn og 7 kr. tollur á tonni, þá yrðu árstekjurnar 350 þús. kr., en með 40 þús. tonnum yrðu það 280 þús. kr.; á þessu 4 ára bili yrði skatturinn því yfir 1 milj. kr., í stað ½ milj., eins og hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) segir.

Það er sagt, að þessu frv. liggi á, en það fæ jeg ekki sjeð. Nú er liðið á síðari hluta árs, og eins og sakir standa, þá munu menn kynoka sjer við að flytja upp meira salt er brýn þörf krefur: má því ekki búast við verulegum saltinnflutningi fyr en með vorinu, og svo efa jeg, að það sje rjett að hrapa að þessum skatti, því það hafa allir gert reikninga sína, án þess að búast við þessum tolli, og því ekki rjett að láta lögin verka aftur fyrir sig.

Ummælum þeim, er höfð hafa verið um, að jeg hafi tafið málið, hafa hv. meðnefndarmenn mínir svarað, svo jeg þarf ekki að svara því, enda er þvert á móti því, að svo sje; jeg hefi þvert á móti reynt að flýta fyrir málinu, og sem dæmi um það og skjót vinnubrögð skal jeg geta þess, að jeg skrifaði undir nefndarálitið án þess að lesa það, gerði það til að tefja ekki málið, og þurfti þess raunar heldur ekki, þar sem jeg ritaði undir það með fyrirvara.