20.08.1919
Neðri deild: 40. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1728 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
84. mál, sjúkrasamlög
Frsm. (Pjetur Ottesen):
Jeg vil að eins vekja athygli á því, að breytingin, sem hv. Ed. hefir gert á frv., er sú, að þær breytingar, sem gerðar hafa verið á sjúkrasamlagslögunum síðustu árin, hafa allar verið færðar inn í texta laganna frá 1911, og gefið út í einu lagi, sem lög um sjúkrasamlög. Vænti jeg, að allir geti fallist á þessa breytingu.