07.08.1919
Neðri deild: 27. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)

113. mál, brúargerðir

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Jeg þarf í rauninni engu við að bæta það, sem jeg áður hefi sagt. Jeg gat þess í ræðu minni fyr, að nefndin hefði tekið báða þessa liði til athugunar, sem um hefir verið talað, og hækkað þá. Þetta er því í samræmi við vilja hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.). enda þótt hann vildi ganga enn lengra. Ef hann kemur fram með brtt., tekur nefndin auðvitað afstöðu til þess. Jeg gat um það að jeg geri ráð fyrir, að nefndin íhugi nánar, hvort 15 þús. kr. sjeu ekki of lágt áætlað í B.-lið 2. gr., og má búast við, að það verði hækkað upp í 20 þús. kr. Hvað snertir afstöðu fjárveitinganefnda til frv., þá gat jeg og þess, að þær mundu vera því samþykkar. Það hefir sjerstakleg; komið til álita hv. fjárveitinganefndar í þessari hv. deild. Hún fellst að öllu á það, en hefir að vísu enn ekki gefið skriflegt það álit sitt. En jeg vænti þess, að það verði komið fram fyrir 2. umr. málsins.