12.08.1919
Neðri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)
113. mál, brúargerðir
Frsm. (Gísli Sveinsson):
Jeg hefi ekki mörgu að svara eða andmæla af því, sem hv. tillögumenn hafa látið um mælt. Jeg skal geta þess fyrst, að um brú þá, sem hv. þm. S.-Þ. (P. J.) leggur til, hefir nefndin ekki tekið ákveðna afstöðu, og hefir hver nefndarmaður þar alveg óbundnar hendur. Jeg fyrir mitt leyti sje ekkert því til fyrirstöðu, að þessi brú sje tekin með. Frá mínu sjónarmiði er fleira, sem mælir með því, að sú brú sje tekin með, en sagt verður um brúna á þgskj. 328. Sú á mun vera, hvort sem mikill heyskapur er fluttur yfir hana eða ekki, ein af þessum smáám eða bæjarsprænum, sem gott væri auðvitað að fá brú á, svo að hundur væti sig þar ekki í löppina, en þola vitanlega engan samanburð við þau manndrápsvötn, sem enn eru óbrúuð víðs vegar á landinu, og verða að vera það. Það getur auðvitað verið gott fyrir einstaka þingmenn að fá svo mikið af brúm fyrir kjördæmi sín, að menn geti þar allir gengið þurrum fótum, en það átti ekki alment að vera hv. þm., og því síður öllum landslýð, keppikefli, að hver smáspræna sje brúuð á einhverjum stað, meðan svo margt er óbrúað af stærri vatnsföllum á öðrum stöðum. Það mun rjett vera, að þessi á er á þjóðvegi, en honum mjög fáförnum, en það er þýðingarmikið atriði í þessu sambandi. En nefndin hefir enga ákvörðun tekið til þessa, og eru mönnum því frjáls atkvæði sín um hana sem hina. En það er í raun og veru mjög einfalt atriði, að eins fjáratriði, hvort gera á ráð fyrir fjárveitingu til þessarar brúar. Margar sprænur munu hafa eins mikinn rjett á sjer. Annars virtist mjer flm., hv. 2. þm. S.-M. (B. St.), vera óþarflega hviss í garð nefndarinnar, mín, eða vegamálastjóra, eða einhverra. Jeg hefi látið þetta nál laust og óbundið, en það verður að skýra frá hverju máli eins og rjett er.
Nefndin hefir líka óbundin atkvæði um till. á þgskj. 306, og jeg hefi farið hlýjum orðum um hana sem undantekning frá þeirri reglu, sem verður að gilda nú, að viðhald flutningabrauta hvíli fyrst um sinn á hendi sýslusjóðanna. Það er augljóst og þarfnast ekki frekari röksemda. En um einstök verk eins og þetta, að endurbyggja trjebrýr á stöku vatnsföllum, getur maður sagt, að ganga megi inn á. En hitt var algerlega órjettmætt í þessu sambandi, að hv. þm Borgf. (P. O.), sem hjer er gerð sjerstök aðhlynning með undirtektunum undir till. hans, fari að telja þetta yfirbót fyrir, að nefndin hafði áður lagst á móti gersamlega órjettmætri og óhæfilegri till. frá honum og hv. þm. Mýra. (P. Þ.). Það er gott, að þingmenn beri umhyggju fyrir sínu hjeraði, en svo mikil hreppapólitík, sem ekkert lát er á, er jafnvel ekki hv. þm. Borgf. (P. O.) til neins sóma. Það var öllum vitanlegt, að sú flutningabraut, er fyrir honum vakti, er hann flutti þá till., var Borgarfjarðarbrautin. (P. O.: Nei! Margendurtekinn útúrsnúningur!) Það kom fram í skýringum hans, hvaða braut það var.
Hv. þm. Borgf. (Þ. O.) tók, eins og rjett var, aftur 2. brtt. á þgskj. 309, þar sem nefndin hafði gengið inn á hakkað tillag til þess liðar. En hitt er verra, að hann hefir ekki tekið aftur hina tillöguna á sama þgskj., því að hún er hálfu ósanngjarnari og órjettmætari. Það er ekki tiltökumál, þótt hinn liðurinn væri hækkaður úr 15 þús. kr. upp í 20 þús. kr., en að stökkva úr 50000 kr. upp í 80000 kr. er á engum rökum bygt. Jeg hefi sýnt fram á það, að þessar brýr á sýsluvegum geta ekki gerst í einu kasti, svo að meira fje verði notað en hjer er til taks. Hv. þm. Borgf. (P. O.) hjelt því fram, að hjer væri um að tala að brúa slíkar ár allar, stórar og smáar. En það er ekki rjett. Allar stærri brýrnar eru undir A, en hinar minni undir B. En stærri brýr á sýsluvegum verða ekki gerðar svo ört, að 100,000 kr. á fjárhagstímabili nægi ekki. En háttv. þm. (P. O.) bætti því að vísu við, að sín till. væri bundin við það, að önnur till., frá háttv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.), næði fram að ganga. Það eru auðvitað rök, sem rjett er að hlýða á. En það er mjög ólíklegt, að brtt. hans verði samþ. Mjer sem frsm. og nefndinni finst það mjög ólíklegt, að þingið vilji ganga inn á þá breytingu, sem hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) fer fram á.
Hann taldi, háttv. 2. þm. N. M. (Þorst. J.), í enda ræðu sinnar, að vegamálastjóri myndi því ekki mótfallinn, þótt tillagið af hálfu ríkissjóðs væri hækkað frá því sem var í frv. hans. Jeg hefi nú skýrt frá því, að nefndin hafi hækkað tillagið úr 2/3 upp í er um stórbrýr væri að ræða. En það er að hverfa frá reglunni, og það á því sviði, þar sem viðlit er að veita undantekningar, en það er þar, sem kostnaður er helst til mikill til að falla að 1/3 á sýslufjelögin. Er miðað við fyrirtæki, sem kosta 40 þús. kr. eða meira. Mjer finst sjálfsagt, að deildin haldi sjer við þetta. Einhversstaðar verður að setja takmörkin, og smærri brúarfyrirtæki verða ekki tekin hjer með, nema algerlega sje horfið frá reglunni. En það stappar nær því, ef till. á þgskj. 328 er samþykt, að öllum kostnaðinum sje velt af sýslusjóðunum yfir á ríkissjóð, eða með öðrum orðum, að landssjóði sje að öllu leyti ætlað að kosta allar brýr á landinu. En allar lagasetningar, sem hjer gilda í landi, fara í bág við þetta. Ef horfið er út frá grundvellinum, leiðir það til margs, sem er nú alveg óútreiknanlegt, en það er mjög óhyggilegt og óheppilegt. En jeg skal geta þess út af orðum sama háttv. þm. um tekjustofna sýslusjóðanna, að hjer hefir verið samþykt þingsályktunartill. frá samgöngumálanefnd, um það meðal annars, að stjórnin rannsaki og geri tillögur um gjaldstofna sýslusjóða vegna vegagerða, aðra eða fleiri en nú eru. Vona jeg, að árangur þeirrar rannsóknar verði lagður fyrir Alþingi. Þar sem sú till. hefir verið samþykt, er þegar búið að vinna í áttina að því að ætla sýslufjelögunum meiri tekjustofna; er þá ósamræmi í því að velta um sama leyti öllum kostnaði við brúargerðir á sýsluvegum yfir á ríkissjóð. Nú má geta þess, að þær brýr, sem háttv. 2. þm. N.-M (Þorst. J.) hefir hjer augastað á, eru brýrnar í Vopnafirði. Þær mega með nokkrum rjetti kallast stórbrýr, og eiga að kostast að nokkru leyti af sýslusjóði. Jeg skal og geta þess, að í sömu till., sem jeg áður nefndi, er ætlast til, að rannsakað sje, hvort ekki skuli gera breytingar um þjóðvegina, og var tilefni til þess meðal annars málaleitun frá þessum sama háttv. þm. (Þorst. J.), um að tekin væri í þjóðvegatölu sá vegur, sem þessar ár eru á. Og ef það yrði ofan á, að þessi vegur kæmist í flokk þjóðvega, þá kæmu þessar brýr alveg á ríkissjóðinn. Jeg tel ekki rjett að samþykkja till., sem þá yrði að gilda einnig um allar svipaðar brýr á landinu, og nefndin vill ekki víkja frá rjettum grundvelli með því.
Nú man jeg ekki eftir fleiru, sem athugasemda þarf við, nema ef vera skyldi fyrirspurn háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.), hvað nefndin hefði hugsað sjer um framkvæmdir ýmsra brúargerða, sem ákveðnar hafa verið áður, og tók t. d. brúna á Eyjafjarðará, sem er í fjárlögum. Nefndin hefir ekki hugsað sjer það neitt frekar en liggur í eðli málsins og tekið er fram í 1. gr. frv., að þær verði framkvæmdar eftir því, sem atvik og ástæður leyfa, og í þeirri röð, sem landsstjórninni í samráði við vegamálastjóra þykir rjett. Þar með hefir þingið væntanlega að mestu afsalað sjer því, að geta keyrt fram með atkvæðamagni jafnvel stórar brýr á móti till. vegamálastjóra. En jeg skal geta þess, að röðin er alls ekki miðuð við það, er stendur hjer í frv. Og jeg get frætt hv. 1. þm. Eyf. (St. St.) um það, að brúin á Eyjarfjarðará og ýmsar aðrar munu gerðar einna fyrstar, þótt seinna sjeu taldar en aðrar, eftir því, sem vegamálastjóri hefir sjálfur skýrt frá, og gefur það að skilja, þar sem þær hafa þegar verið teknar upp í fjárlög.