12.08.1919
Neðri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1747 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
113. mál, brúargerðir
Björn R. Stefánsson:
Háttv. frsm. (G. Sv.) hefir enn gert sjer mikið far um að gera lítið úr þessu vatnsfalli, sem jeg flyt hjer brtt. um að láta brúa. Mjer skildist, að hann hafi tekið svo í málið einkum fyrir þá sök, að jeg hefði verið eitthvað hvassyrtur í garð vegamálastjóra eða nefndarinnar. En svo var ekki. En hvassyrðin í garð hv. frsm. voru ekki önnur en þau, sem makleg voru, að það lýsti miklum ókunnugleika, þar sem hann talaði um, að þessi vegur væri einkum heybandsvegur. Hann gerði mikið úr því, hve þetta væri lítið vatnsfall. Það er satt, að hún er lítil að öllum jafnaði, saman borið við stórvötnin, en þó getur hún valdið miklum farartálma. Þar sem vegurinn liggur að henni eru leirur, sem flæðir yfir þegar hásjávað er. (G. Sv.: En þornar alveg í þurkum). Menn þurfa oft að svamla þarna í nokkrar mínútur eða að öðrum kosti (G. Sv.: Það þarf því að brúa sjóinn) verður að krækja alllangt um mjög ógreiðan veg. En fyrir utan þessar leirur er mjór ós, og er þar tilvalið brúarstæði. En vatnsfall þetta er annars hinn versti farartálmi, því krókurinn er bæði langur og torsóttur þegar hásjávað er.
Þá vill hann gera lítið úr því, að nokkur veruleg umferð sje um þessar slóðir, og fæst af því sjeu þá nytsamar ferðir. Þarna kemur líka fram ókunnugleiki hans. Vegurinn er alls ekki fáfarinn, heldur þvert á móti. Svo veit jeg ekki betur, þegar talað er um vegi alment, en þá sje sjaldnast verið að spyrja um það, hvort ferðirnar, sem farnar eru um þá, sjeu allar nytsamar eða ekki. Við skulum t. d. taka ferðirnar suður í Hafnarfjarðarhraun hjeðan eða upp að Baldurshaga. Jeg hygg, að þær, að minsta kosti margar þeirra, sjeu ekki nytsamari en ferðirnar yfir Eskifjarðará, og þó telur þingið sjer skyldugt að sjá þar fyrir góðum ferðum, á þessum leiðum, vegna þess, hve oft sje um þá farið, og þá ekkert að því spurt, hvað margar af þeim ferðum eru óþarfa ferðir.
Jeg gat ekki leitt hjá mjer að gefa deildinni frekari upplýsingar en frsm. (G. Sv.) gaf, sem greinilega talaði af stakasta ókunnugleik á málinu, og hefði þá átt færra um það að segja.