19.08.1919
Neðri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)
126. mál, löggiltar reglugerðir um eyðing refa o. fl.
Hákon Kristófersson:
Jeg skal ekki vera margorður um frv. þetta. Það er, eins og hv. frsm. sagði, meinlaust, en jeg fæ ekki sjeð, að í því sje mikil bót frá þeim lagaákvæðum, sem nú eru í gildi. Jeg ætla að geyma mjer til 2. umr. að spyrja nefndina, hvernig skilja beri ákvæði 3. gr. frv.
En hinu held jeg ákveðið fram, að frv. þetta sje engin bót frá gildandi ákvæðum. (M. P.: Það er kák, eins og annað, sem landbúnaðarnefnd leggur til þessa máls). (S. S.: Það eru þó skýrslurnar;. Skýrslur eru einungis til að auka skriffinsku, og vjer höfum reynslu fyrir því, hve lítils virði þær eru, þessar skýrslugerðir, í mörgum greinum. Enda eru til skýrslur um þetta atriði í hverri sveit, og reikningar frá hreppsnefndaroddvitum til sýslunefnda. Þetta lendir því alt í sama fari, nema hvað það beinist nú nokkuð í aðra átt.
Og stjórnarráðinu á að fela að semja fyrirmyndir að skýrslunum. Það má vel vera, að stjórnarráðið geti það, en tæplega þó, nema það afli sjer aðstoðar sjerfræðinga.
Jeg geng þess ekki dulinn, að nefndin álítur, að þetta bæti núverandi ástand, en þrátt fyrir besta vilja er mjer ómögulegt að skilja það. Sýslunefndir hafa nú, eins og er, málið í hendi sjer, og styðjast við fyrirmæli, sem eru í fullu lagagildi.
Það skyldi þá vera talin bót, að nú á þetta alt að ganga stjórnarráðsveginn. En jeg efast um, að stjórnarráðinu þyki sjer nokkur vansæmd ger, þótt það komist hjá því að hafa bein afskifti af refaeyðingu.