29.08.1919
Efri deild: 43. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)

128. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Frsm. (Halldór Steinsson):

Eins og jeg gat um við 1. umr., eru allar breytingarnar, sem farið er fram á í frv., í samræmi við óskir hlutaðeigandi hjeraða Samgöngumálanefndir beggja deilda hafa fjallað um málið, og það var borið undir landssímastjórann, sem var því meðmæltur. Brtt., sem komið hafa fram hjer í hv. deild, hafa einnig verið bornar undir landssímastjórann, og fjelst hann á ástæðurnar fyrir þeim.

Jeg legg því til, fyrir hönd nefndarinnar, að frv. verði samþykt með þeim brtt., sem hjer liggja fyrr.