22.09.1919
Efri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (168)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Eggert Pálsson):

Það má nú búast við því, að tekið sje að síga á seinni hluta umræðnanna, enda eru nú komin venjuleg háttumál heiðarlegra manna. Jeg verð þó að neyðast til þess að gera nokkrar athugasemdir út af ræðum ýmsra háttv. þm.

Um deilu þá, er staðið hefir milli hæstv. ráðherra og háttv. þm. Ísaf. (M. T.) um nafn sendimannsins, skal jeg ekki vera margorður. Eins og jeg tók fram, eru atkvæði nefndarmanna óbundin um það atriði. En frá mínu sjónarmiði má kalla, að hjer sje deilt um keisarans skegg. Svo framarlega sem fjárhæðin er söm og jöfn, virðist mjer á sama standa um nafnið. Jeg fæ ekki sjeð, hvað það þarf að hneyksla, að sendimaðurinn sje kallaður sendiherra, sem er gott og gamalt orð, sem allir skilja, eða hvað unnið sje með því, að taka upp nýtt orð, sem enginn þekkir og er óákveðið að merkingu. Hæstv. forsætisráðherra (J. M.) gat þess og, að þótt vjer notuðum þetta nafn, fæli það samt ekki í sjer neitt það, sem gæti bundið sendimanninn til óþarfa tildurs eða prjáls.

Annað atriði í ræðu hv. þm. Ísaf. (M. T.) var um barnaskólann á Ísafirði, þess efnis, að hann fengi 1000 kr. af því fje, sem ætlað er til barnaskóla í kaupstöðum og eftir upplýsingum hans sje jeg ekki ástæðu til að vera á móti þeirri till. Jeg býst við að orsökin til þess, að Ísfirðingar hafa farið á mis við þennan skólastyrk síðastliðið ár, sje ekki fólgin í ófyrirgefanlegum trassaskap af þeirra hálfu, en geri ráð fyrir, að það hafi verið óhepni eða vangá, að skýrslur og reikningar bárust eigi fræðslumálastjóra nógu snemma, og því ekki rjett að svifta þá styrk alfarið, þótt reikningurinn kæmi ekki í tæka tíð. Eins og háttv. þm. mintist á, er þetta í raun og veru ekki tekið frá neinum, því aðrir, er fá nú þeim mun minna, hafa fengið þeim mun meira áður af þessu fje.

Að því er snertir brtt. hv. þm. Ísaf. (M. T.) um að fella niður styrkinn til Bjarna Jónssonar frá Vogi til að þýða Goethe’s Faust, þá virtist hann rökstyðja það helst með því, að þingið hefði farið svo vel með þennan mann, að ekki væri þörf að veita honum þennan styrk. Jeg gæti skilið þetta og gengið inn á það, ef þessi styrkur væri að eins veittur honum til lífsviðurværis, en ekki litið á hina hliðina, að í stað styrksins komi verðmæt þýðing. Fyrst þegar lagt var út í að veita þennan styrk, mátti margt um hann ræða, og það litu margir svo á, að annað þarfara lægi fyrir framan okkur næstu árin en að kosta þessa þýðingu. En úr því það ráð var tekið að veita styrkinn, og það hefir verið gert um nokkur undanfarin ár, og verkið þar af leiðandi komið töluvert á leið, virðist mjer vera misráðið að hætta við hann í miðju kafi.

Um till. sama hv. þm. (M. T.) um að veita Önnu Bjarnadóttur 600 kr. styrk á ári, til náms í Englandi, er að vissu leyti vont að eiga. Það er ekki gaman, eða vinsælt, að berjast á móti því, að styrkja efnilegan mann eða efnilega stúlku til náms. En hv. þm. (M. T.) viðurkendi sjálfur, að nefndin hefði mikið við að styðjast um það að veita ekki stúdentum styrki úr ríkissjóði. En háttv. þm. (M. T.) taldi, að hjer væri um undantekningu að ræða, og studdist við, að nefndin hefði veitt styrk til rafmagnsnáms. En jeg verð að telja, að það sje ekki saman berandi. Við vitum, að það er ekki unt að verða fullnuma í rafmagnsfræði hjer heima, — fossamálum vorum og hagnýting fossanna er ekki enn þá svo langt komið —, en hins vegar mikil þörf fyrir slíka menn. Öðru máli er að gegna um enskunám. Þó ekki sje hægt að verða eins fullkominn í ensku hjer og á Englandi, þá er þó hægt að læra mjög vel ensku hjer heima, eins og hvert annað tungumál. eða að minsta kosti svo, að við megi una.

Í sambandi við þessa till. og ummæli hv. þm. Ísaf. (M. T.) mintist hv. 2. G.-K. (K. D.) á afstöðu nefndarinnar gagnvart styrk til íslenskra námsmanna erlendis yfirleitt. Hann kvartaði undan því, að hann vantaði umsögn fjárveitinganefndar beggja hv. deilda um það, hvernig með það mál skuli fara.

Jeg kannast við það, að að því er ekki vikið í áliti fjárveitinganefndar Ed. og svo mun og vera um nefndarálit fjárveitinganefndar Nd. Það er gömul og eðlileg venja nefndanna að víkja ekki að þeim málum, sem þær ganga fram hjá, og kemur það af því, að fjárveitinganefndunum berast svo mörg skjöl, að það mætti æra óstöðugan, ef það ætti að gera grein fyrir hverju einstöku þeirra í nál. Því hafa nefndirnar jafnan látið sjer nægja að geta þeirra erinda einna, sem þær leggja til að sint verði að einhverju leyti, en sleppa hinum.

Jeg býst við því, að það hafi vakað fyrir fjárveitinganefndunum, að því er þetta atriði snertir, að stúdentar þessir mundu fá styrk úr sáttmálasjóði háskólans, og stofnskrá hans bendir í þá átt, að það sje rjett á litið. Það er skýrt tekið fram í 3. liðnum, að styrkja skuli íslenska námsmenn erlendis. Og jeg sje ekki, að það sje rjett, er hv. þm. Ísaf. (M. T.) vildi halda fram, að Anna Bjarnadóttir sje útilokuð frá styrknum vegna þess, að hún ætlar að stunda nám í Englandi, því hún er íslenskur stúdent jafnt fyrir því, og stundar nám erlendis. Vextir sjóðsins nema 50 þús. kr. á ári, og þó 10 þús. kr. væri varið til að leggja við höfuðstól, þá væru samt eftir 40 þús. kr. til að glíma við, og virðist, að eitthvað af því mætti nota í áminstu augnamiði.

Loks vill hv. þm. Ísaf. (M. T.) láta falla niður athugasemdina við 16. gr. 17. lið fjárlaganna b. Jeg get að vísu kannast við, að hv. þm. Ísaf. (M. T.) hafi rjett til að amast við þeim 500 krónum á ári, sem þar á að verja til kenslu á Ísafirði, en hann hefir engan rjett til að reyna að koma í veg fyrir, að Fiskifjelagið megi verja af þessu fje upphæð til launa og ferðakostnaðar handa sendimanni sínum. Jeg kannast ekki við, að stjórn Fiskifjelagsins hafi beðið hann að ganga hennar erinda. Ef stjórn fjelagsins hefði talið þess þörf að fella þessa athugasemd niður, mundi hún hafa snúið sjer til fjárveitinganefndar Ed. eða fjárveitinganefndar Nd., en það hefir hún ekki gert. Jeg tel því, að hv. þm. komi þetta atriði lítið við, og best sje að lofa athugasemdinni að standa.

Þá þarf jeg að víkja nokkrum orðum að hv. þm. Ak. (M. K.) og meðflytjanda hans, hv. þm. Vestm. (K. E.). Þeir mæltu, eins og lög gera ráð fyrir, sterklega með brtt. sinni um að veita Byggingarfjelagi Reykjavíkur 6000 kr. styrk hvort árið. Það er í sjálfu sjer ekki furða, þó þeir mæli með því, þar sem þeim er alvara með till., og þeir fullfærir um að tala vel máli sínu.

Hv. þm. Ak. (M. K.) gerði sjer von um það, að ef brtt. næði fram að ganga hjer, þá mundi hún fá góðan byr í hv. Nd., þó hún hefði fallið þar áður, þegar upphæðin var hærri. En jeg efa að svo sje; að minsta kosti er upphæðin mjer ekki þyrnir í augum, heldur stefna sú, er till. byggist á. Hitt er aukaatriði, hvort veittar væru 6, 8 eða 12 þús. kr. á ári í þessu skyni; aðalatriðið er og hlýtur að vera stefnan. Og jeg tel stefnuna óheillastefnu. Hv. þm. Ak. (M. K.) taldi, að þessi till. mundi ekki leiða neinn dilk á eftir sjer, en það var auðheyrt, að hv. meðflytjandi hans (K. E.) leit öðruvísi á það atriði og taldi það vel farið og sjálfsagt að veita öðrum kaupstöðum samskonar styrk síðar meir. Það lítur svo út, sem hv. þm. Ak. (M. K.) og Vestm. (K. E.) vilji, að fólkið dragist sem mest til kaupstaðanna, en jeg er þar á annari skoðun. Jeg tel það óholt fyrir þjóðfjelag vort, ef straumurinn til kaupstaðanna yrði mjög mikill, Það gæti þá jafnvel farið svo, að sveitirnar legðust að meira eða minna leyti í auðn og landið yrði mestmegnis eða eingöngu fiskiver. Og skil jeg ekki, að margir sannir og þjóðhollir Íslendingar æski þess. Frá sveitunum hefir þjóðinni komið sá kraftur, sem hefir lyft henni áfram á braut menningar og framfara, og ef fólkið hverfur úr sveitunum, þá gef jeg ekki mikið fyrir framtíð þjóðarinnar.

Tilgangurinn með þessari till. á víst að vera sá að koma í veg fyrir kjallaraíbúðir og aðrar slæmar íbúðir. Jeg efa nú ekki, að þessi tilgangur er í sjálfu sjer góður. En jafnframt verður að gæta þess, að till. gerir og það að verkum, að húsaleiga verður ódýrari, og fólksflutningurinn til bæjarins þar af leiðandi vex. Og þegar aðstreymið er meira en húsrúmið leyfir, eins og verið hefir, þá verða kjallaraíbúðirnar fullar eftir sem áður. þessi góði tilgangur háttv. þm. næst því ekki með till.

Hv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að það væri eðlilegt að fólkið leitaði til kaupstaðanna, af því að stórbændur í sveitinni hefðu leikið það svo illa. Jeg kannast ekki við, að hjer á landi sjeu nokkrir stórbændur og jeg hefi aldrei heyrt talað um það, að bændur leiki illa fólk sitt. Reglan mun vera sú, að vinnufólkið líður súrt og sætt með húsbændunum sjálfum. Jeg játa það, að kaupgjaldið hefir verið lágt, en það var það líka í kaupstöðunum fram á síðustu ár. Síðan kaupgjaldið hækkaði í kaupstöðunum hefir það einnig hækkað til sveita. Það er hægt að slá því fram, eins og hv. þm. gerði, að það sje hægt að gera vistlegra í sveitinni en er, svo að fólkið vilji eins vel vera þar og í kaupstöðunum. En jeg hefi ekki orðið var við, að þingið vildi gera það, sem er undirstöðuatriði til þess, sem er verulegar samgöngubætur, svo sem járnbrautarlagning. Það hefir verið talað um það, og þar við látið sitja, ár eftir ár. Og meðan svo er látið ganga hlýtur fólkið takmarkalítið að streyma til kaupstaðanna, þar sem það nýtur meiri lífsþæginda, sem og skemtana, að ógleymdum Bíóunum, sem ekki er hægt að hafa í sveitunum.

Jeg er fyllilega samdóma hv. þm. (M. K.) að hv. deild hafi vel gætt sóma síns í öllum málum á þessu þingi, og að hún eigi og svo að gera að því er snertir þessa till. En það gerir hún best með því að fella hana, en ekki samþykkja.

Jeg er einnig samdóma honum um það, að eitt óheillaspor geti komið miklu illu til leiðar. En þótt við sjeum samdóma um það, þá er það með mismunandi skilningi á þessari till. Óheillasporið er frá mínu sjónarmiði það, að lofa þessari tillögu hans að ganga í gegn.

Víkja vil jeg fáum orðum að mínum góða og gamla vini, hv. þm. Snæf. (H. St.). Jeg þarf ekki að taka það illa upp, þótt hann hafi verið illvígur í minn garð, því hv. þm. hafa oft heyrt það, að hann getur einatt, þegar hann vill svo vera láta, verið talsvert illvígur í orðum, án þess að hann meini verulega ilt með því. Jeg mun því ekki kippa mjer neitt upp við það, þótt hann hafi að þessu sinni beint allhörðum orðum til mín. Og ekki mun jeg fara í neitt skítkast við hann. Hann sagði, að skýrsla mín um aukalækninn á Ísafirði væri röng og villandi, en jeg get ekki kannast við, að jeg hafi sagt neitt, er rangt væri, um þetta atriði. Jeg sagði, að ef brtt. hv. þm. (H. St.) væri samþykt, væri aukalæknir þessi eins vel settur og læknir í lægsta flokki eftir launalögunum. Læknir í lægsta launaflokki ætti að fá 2500 kr. laun, og þar við bætist dýrtíðaruppbót, svo hann fær alls um 4800–5000 krónur, en eftir till. hv. þm. á þessi aukalæknir að fá 4000+800 kr. sem aukalæknir, eða alls 4800 kr., og verða það því nærfelt sömu launin.

Nefndin lítur svo á, að með þessu sjeu laun hans orðin svo há, að hann muni ekki sækja um læknishjerað, en hjer er í sjálfu sjer um einskonar biðlaun að ræða, þar sem starf þetta á að leggja niður.

Jeg þarf ekki að vera langorður um ummæli hv. 1. landsk. þm. (S. F.). Hann ljet í ljós, að hann væri óánægður með, að það sæist ekki glögt í fjárlögunum, hvernig fjárhagnum væri varið. Jeg kannast við að svo sje, en það er ekki unt að setja inn í fjárlögin alstaðar rjettar tölur úr launalögunum. Ef það hefði átt að gera, hefði þurft að athuga hvern einstakan starfsmann, hve lengi hann hefði verið í embætti o. s. frv., og þar sem þinglausnir standa fyrir dyrum, vildi nefndin ekki ráðast í það. Það er víst, að það hefði tafið mjög þingið, lengt það að minsta kosti um viku, að hv. þm. (S. F.) hafi gert þetta upp efa jeg mikillega. Til þess að það væri svo gert, að vel væri, hefði hann þurft að rannsaka embættis- eða starfsaldur hvers embættis- eða sýslunarmanns, og hann hefði jafnframt þurft að rannsaka, hvort þeir hefðu ekki áður verið ,,settir‘‘ til starfans, því það er talið með. Þessi rannsókn, ef ábyggileg ætti að vera, tekur mikinn tíma og útheimtir meiri gögn en jeg býst við að hv. þm. hafi haft. Auk þess er enn ekki kunnugt, með hvað hárri dýrtíðaruppbót eigi að reikna, þ. e. a. s. hver vísitalan verði.

Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um mál þetta að sinni.