22.09.1919
Efri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Magnús Kristjánsson:
Hv. 1. þm. Rang. (E. P.) sagði, að kominn væri háttatími fyrir siðað fólk. Samt hjelt hann sjálfur langa ræðu, þó sennilega eigi ekki að skilja það svo, að hann teljist ekki til siðaðs fólks.
Að því sem ræða hans tók til mín, þá er það að segja, að hann lagði mjer í munn orð, sem jeg hefi aldrei sagt, og lagði svo út af því. Hann sagði t. d., að jeg hefði sagt, að stórbændurnir færu mjög illa með verkafólk sitt. Að vísu má vera, að hv. 1. þm. Rang. (E. P.) hefði þótt nærri sjer höggið með slíkum orðum. En jeg sagði í þessu sambandi ekki annað eða meira en jeg get staðið við.
Það er annars sorglegt til þess að vita, þegar lagst er af misskilningi á móti svo nytsömu máli og því, sem hjer er um að ræða. Hv. þm. (E. P.) gat þess að vísu, að það væri ekki fjárhæðin, sem sjer yxi í augum — heldur stefnan. Og um hana hafði hann þau þungu orð og óþörfu, að hún væri óheillastefna. En sem betur fer, er það vafasamt, að slík ósæmileg ummæli beri þann árangur, sem til er ætlast. Og þrátt fyrir alla mótspyrnu hins hv. frsm. (E. P.), þá vona jeg samt, að hinn góði málstaður sigri að lokum, en ekki hið þrönga sjónarmið hv. 1. þm. Rang. (E. P.). Aðalástæða hv. þm. var reyndar sú tilgáta, að þetta mundi verða til þess að auka mjög aðstreymið að kaupstöðum og sjávarþorpum. En ekki virðist mikil ástæða til þess, þó að bygð sjeu nokkur hús yfir þá, sem verst eru staddir. þegar vitanlegt er, að mörg hundruð manns eru svo að segja á götunni. Og að kalla þetta óheillastefnu virðist mjer beinlínis ósæmilegt.
Í sambandi við þetta er svo alt tal hv. þm. (E. P.) um það, að sveitirnar leggi til kraftinn og kjarnann í þjóðina. Það er reyndar — af ofurskiljanlegum ástæðum — ekki ósennilegt, að svo hafi verið, meðan svo að segja allir voru sveitamenn. Og auðvitað stafa kaupstaðabúar þaðan. En hitt leyfi jeg mjer að efa, að þetta kaupstaðafólk standi yfirleitt að baki sveitafólkinu. Það er óviðeigandi gorgeir að vera sífelt að ala á þessu. Og út yfir tekur þó, þegar menn eru að tala um, að verið sje að gera landið að menningarsnauðu útskeri eða fiskiveri. Jeg veit ekki betur en bæjarmenn standi eins vel í stöðum sínum og sjeu yfirleitt eins þjóðnýtir og sveitamenn, að þeim annars ólöstuðum.
Annars er árangurslaust að fara mörgum orðum um þetta. Jeg hefi að eins viljað benda á það, að ómaklega hafi verið að mjer ráðist og af misskilningi á orðum mínum, vægast sagt, orðum, sem í alla staði voru hógvær og sanngjörn, bæði í garð sveitamanna og bæjamanna.
En við skulum nú samt gera ráð fyrir
því að fólk hafi flykst meir en góðu hófi gegnir til kaupstaðanna. En ef það tæki nú snögglega sinnaskiftum við ræðu hv. 1. þm. Rang. (E. P.) og vildi nú flytjast aftur til sveitanna í stórum stíl, hvað tekur þá við? Hvaða kjör fær það þar? Jeg veit ekki betur en að það sjeu tíu fyrir einn um hvert kot, sem losnar og ekki hlaupið að því að fá jarðnæði, ef menn vilja byrja búskap. Bændurnir margir hafa umráð yfir miklu landi, og vilja sennilega búta það sundur í smáhluta — til að bjarga þjóðfjelaginu frá glötun, eins og hv. þm. komst að orði. En þó svo væri, að hægt væri að fá landið, þá þarf fleira til að geta byrjað búskap; það þarf að koma upp sæmilegum bústað — og til þess þarf ærið fje. En ef hv. þm. (E. P.) yrði þar samkvæmur sjálfs sín stefnu, er jeg ekki viss um, að það yrði nægilegt, sem hann teldi fært að leggja af mörkum .,til viðreisnar landbúnaðinum“.
En hjer skal jeg láta staðar numið um þetta atriði — enda er minn málstaður þeim mun betri en málstaður hv. 1. þm. Rang. (E. P.), að ekki þarf að flytja fyrir honum jafnrösklega ræðu og hann taldi nauðsynlegt sínu máli til stuðnings.
En úr því að jeg er staðinn upp á annað borð, langar mig til að minnast lítils háttar á ummæli hv. þm. Snæf. (H. St.) um aðstoðarlækninn á Ísafirði. Um rjettmæti eða nauðsyn þessa embættis get jeg vísað til þess, sem jeg hefi áður sagt. En þó vil jeg benda á það, að þar sem í ráði er að skifta þessu hjeraði og stofna þar nýtt læknisembætti fast, virðist því minni ástæða til að hafa þar líka þriðja manninn fastan og hálaunaðan, á svona hlutfallslega litlu svæði, ekki síst þegar litið er á þau vandræði, sem ýmsar aðrar sveitir verða að þola vegna læknisleysis, þar sem Alþingi synjar þeim um læknishjálp, þó að meiri sje þörfin en þarna.
Þar sem hv. þm. Snæf. (H. St.) sagði að jeg hefði áður haldið því fram, að læknirinn ætti í fjárlögunum að fá uppbót, svo að hann yrði ekki ver úti en áður, þá er þess að gæta, að þar átti jeg auðvitað að eins við það að hann yrði ekki ver úti en hann er nú. En að telja, að með því sje verið að níðast á manninum. er alveg ósæmilegt. Hann er látinn njóta fullrar sanngirni.
Þá verð jeg að víkja nokkrum orðum að hv. 1. landsk. varaþm. (S. F.), út af ummælum hans um byggingarfjelagið. Jeg hafði þó ekki búist við slíkum undirtektum frá honum, því mjer hefir virst rjettlætistilfinning hans á svo háu stigi. En öllum getur skjátlast. Röksemdir hans voru að mestu leyti þær sömu og hv. 1. þm. Rang. (E. P.) flutti, og eru þær marghraktar. Hann fór líka að tala um fjárhaginn yfirleitt og hið aumlega ástand hans nú. Þetta er reyndar ekki ný saga — þó jeg hafi ekki sannfærst um það enn, að hún sje rjett. Þarna er að eins litið á aðra hlið málsins; en til þess að komast að skynsamlegri niðurstöðu er vissast að skoða báðar hliðarnar. Yfirleitt held jeg að það sje of snemt að slá nokkru föstu um fjár haginn. En eins og það er hættulegt að lýsa ástandinu of vel — eins er það hættulegt að láta þjóðina halda, að ástandið sje verra en það er. Það getur dregið kjark úr fulltrúum þjóðarinnar og þjóðinni sjálfri, en það aftur dregið úr nauðsynlegum framkvæmdum.