30.07.1919
Neðri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1799 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)
99. mál, forkaupsréttur á jörðum
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Það er öldungis óþarft að fara mörgum orðum um þetta frv. nú að þessu sinni. Það lá fyrir þinginu 1917 og var þá töluvert rætt og íhugað. Jeg vildi að eins geta þess, að nú er komið fram frv. í hv. Ed., sem er svipaðs efnis, að því er snertir forkaupsrjett á jörðum, sem seldar eru úr sjálfsábúð. Jeg hefi talað við flutningsmann þessa frv., og hefir það orðið að samkomulagi, að þetta frv. mitt gangi sinn gang, því að þar er safnað í eitt ákvæðum um forkaupsrjett, bæði leiguliða og þeirra jarða, sem eru eða verið hafa í sjálfsábúð.
Skal jeg svo ekki segja fleira um málið, en vona, að frv. verði vísað til 2. umr. og til landbúnaðarnefndar.