19.08.1919
Neðri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1800 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

99. mál, forkaupsréttur á jörðum

Frsm. (Stefán Stefánsson):

Eins og hv. þingdm. er kunnugt, hefir tveim frv. um forkaupsrjett á jörðum verið vísað til landbúnaðarnefndarinnar. Annað var borið upp hjer í hv. deild, en hitt var komið frá hv. Ed. Þegar nefndin hafði athugað frv. Ed., áleit hún, að samhengi þess og afstaða til undanfarandi greina væri þannig, að ekki gæti komið til mála að samþykkja það nema með nokkrum viðauka. Hins vegar hallaðist nefndin að því að leggja það til, að frv. hv. þm. Árn. (S. S. og E. A.) væri samþykt, þó með örlítilli breytingu, sem er meira forms- en efnisbreyting. Það frv. fer fram á, að forkaupsrjettur nái eins til þeirra jarða, sem seldar eru í sjálfsábúð, og leigujarða, og sú er líka meiningin með frv. hv. Ed. En eftir núgildandi lögum nær forkaupsrjetturinn að eins til þeirra jarða, sem í leiguliðaábúð eru þegar sala fer fram. Í þessu frv. er ákveðið, að þegar jörð í sjálfsábúð sje til sölu, þá skuli sá jafnan sitja fyrir kaupum, sem tekur jörðina til ábúðar, eða hefir fengið byggingu fyrir henni, svo framarlega sem hann býður ekki minna fyrir hana en aðrir; en afsali hann sjer forkaups- rjettinum, þá öðlist sveitarfjelag það forkaupsrjettinn, sem jörð eða jarðargögn liggja í.

Hjer er bygt á hinu sama sem með þjóðjarðasöluna, því, að efla sjálfsábúð í landinu. Bæði þessi nýju ákvæði eiga og að stuðla að því, að einstakir menn geti ekki sölsað undir sig jarðir til að braska með þær. Það er einmitt mikilsvert fyrir sveitarfjelögin, að utanhreppsmenn hafi yfirráð yfir sem fæstum jörðum innan hreppsfjelagsins, ekki síst nú, þegar það er farið að tíðkast, að þeir hafi þær til ýmissa afnota, þótt þeir sitji í talsverðri fjarlægð og flytji mesta heyfenginn (bæði af túni og engi) af þeim, án þess að hirða um að hafa skepnur á jörðinni að vetrinum til þess að rækta hana, eða afla sjer áburðar á annan hátt.

Nefndinni þótti betur fara á og ljósara að draga 6. og 7. gr. frv. saman í eina gr. og breyta lítið eitt orðalaginu; kemur hún því fram með brtt. í þessa átt.