22.09.1919
Efri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Eggert Pálsson):

Það eru aðallega tveir háttv. þm., sem hafa beint skeytum sínum til mín, þeir hv. þm. Snæf. (H. St.) og hv. þm. Ak. (M. K.). Þó að þeir væru ósammála um flest, kom þeim þó saman um, að jeg hefði komist óprestslega, að orði. Jeg er að vísu prestur, en það kemur ekki við þessu máli, svo það voru óþarfaslettur að tala um óprestslega framkomu af mjer. Mjer skilst, að þessir herrar telji það eitt prestslega framkomu, sem ekki hneykslar þá. En jeg fyrir mitt leyti lít ekki svo á, að það sjeu endilega óprestsleg orð, sem þá kann að svíða undan hjer við fjárlagaumr. Hv. þm. Ak. (M. K.) var að kenna mjer það, að prestum bæri að fara með sannleika. Veit jeg það vel. En jeg veit líka, að það er ekki að eins skylda fyrir presta. Kaupmönnum er jafnskylt sem prestum að fara með sannleika. Þó að þeir stundum leyfi sjer að nota smábrellur í viðskiftum, þá munu allir telja kaupmönnum skylt, jafnt sem öðrum, að vera sannorðir menn. Það, sem gaf hv. þm. Ak. (M. K.) tilefnið til þessarar kennimensku, var tilvitnun mín í þau orð hans, „að stórbændur fari oft illa með fólk sitt og flæmi það úr sveitinni“. En tilvitnunin er enginn tilbúningur. Jeg skrifaði orðin niður um leið og hann sagði þau.

En svo að jeg víki að brtt., þá er það stefnan, sem alt veltur á, en ekki þessi lága upphæð. Hv. 4. landsk. þm. (G. G.) vildi rjettlæta afstöðu sína með því, að fjárhæðin væri svo lítil. En ef rjettmætt er að veita fjárhæðina nú, þá er einnig rjettmætt að veita hana framvegis, og ef Reykjavík er rjett komin að henni, þá eru aðrir kaupstaðir landsins það ekki síður. En fyrst svona er ástatt, þá er ekki um smáupphæð að ræða, heldur stórfje. Hjer er að vísu að eins um litlafingurinn að ræða. En höndin sjálf kemur sennilega bráðlega á eftir. Ofan á það bætist, að með þessu er, eins og jeg hefi tekið fram, og ekki verður með rökum mótmælt, ýtt undir fólk með að flytja úr sveitunum til kaupstaðanna.

Hv. 4. landsk. þm. (G. G.) benti á, að bændur væri nú í óða önn að flytja sjálfir til kaupstaðanna. En hvernig stendur á því? Ástæðan er auðvitað, að verkafólkið þyrpist á undan til kaupstaðanna, og bændur geta ekki setið einir eftir með konur sínar og börn. Bændastraumurinn til kaupstaðanna minkar því ekki, heldur eykst, ef farið er að hlynna að fólki í kaupstöðum umfram sveitafólk. Jeg hjelt, að það væri sjálfsagður hlutur, að kaupstaðirnir reyndu ekki að draga til sín fleira fólk en þeim er nauðsyn á, heldur gerðu sjer þvert á móti far um að beita þeim lagaákvæðum, sem til eru, til að hefta fólksstrauminn, sem í þessu húsnæðisleysi verður þeim að eins til trafala, enda mundu þeir auk eigin hagsmuna gera sveitunum mikið gagn með því.

Eftir því, sem ráða má af venjunni, verður fjárveitingin endurtekin, sje hún samþ. í þetta sinn, og þá sennilega einnig einhverjar svipaðar upphæðir til hinna kaupstaðanna. Og þá er fjárveiting þessi, þótt nú sje talin smá, orðin að stórupphæð, sem frá mínu sjónarmiði orkar engra tvímæla að illa sje varið.

Hvað snertir hv. þm. Snæf. (H. St.), þá fór hann ekki rjett með orð mín um aukalækni á Ísafirði. Jeg hjelt því ekki fram, að læknirinn væri eins vel settur eins og hann stæði í launalögunum, yrði till. fjárveitinganefndarinnar samþ. En hitt tók jeg fram, að væri till. háttv. þm. sjálfs samþ., þá væri hann ekki ver launaður en læknar með lægstu launum. Eftir till. hv. þm. Snæf. (H. St.) ætti læknirinn að hafa 4000+800, sem verður þá eins og lægstu læknislaun. Hvað snertir till. fjárveitinganefndar, ættu laun hans að vera fullkomlega þrefölduð frá því, sem nú er, þar sem hann hefir nú 800, en hefði eftir till. 2800 kr. Það er ekki hægt að segja, að illa sje farið með mann með því, að þrefalda laun hans, og verða margir embættismenn ekki betur úti en svo, og flestir ver. En eftir till. hv. þm. Snæf. (H. St.) yrðu laun þessa manns sexfölduð, og ætla jeg engin dæmi vera til slíks. Jeg álít hneykslanlegt að hækka laun þessa manns frekar en annara og hafa þannig tvo hálaunaða lækna í sama kaupstaðnum. Því vitanlega kemur manninum ekki til hugar að sækja um nokkurt annað læknishjerað, fái hann slíka launafúlgu, sem hv. þm. Snæf. (H. St.) ætlar honum.