21.08.1919
Neðri deild: 41. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (1742)

132. mál, laun háskólakennara

Flm. (Bjarni Jónsson):

Það hafa komið fram málaleitanir frá háskólanum um, að við hann yrðu stofnuð þrjú ný prófessorsembætti, eða rjettara sagt, að þrem docentsembættunum við háskólann yrði snúið upp í prófessorsembætti.

Hv. allsherjarnefnd, sem stjórnin sendi málaleitanir þessar, hefir ekki viljað gefa þeim gaum. Hins vegar er óreynt, hvernig stjórn og þing muni snúast við því, sem frv. á þgskj. 413 fer fram á, að aukakennarinn í íslenskri sagnfræði við háskólann sje gerður að aðalkennara í tjeðri grein. Kennarinn í þessari fræðigrein hefir farið fram á þetta, og háskólaráðið mælt með því. Vona jeg, að hv. þing hiki ekki við að verða við beiðni mannsins og háskólans um þetta.

Jeg get ekki mælt á annan veg betur með málinu en með því, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp umsóknarbrjef aukakennarans og umsögn heimspekisdeildarinnar og háskólaráðsins um hana.

Byrja jeg þá á brjefi aukakennarans.

,,Jeg undirritaður leyfi mjer hjer með að fara þess á leit við háttvirt háskólaráð, að það hlutist til um, að lagt verði fyrir næstkomandi Alþingi frv. til laga um breyting á 1. gr. laga nr. 36, 30. júlí 1909, um laun háskólakennara, í þá átt, að kennaraembættið í sögu Íslands verði gert að prófessorsembætti. Vona jeg, að háttvirt háskólaráð kannist við, að eigi fari vel á því, að sögu Íslands sje gert það lægra undir höfði en flestum öðrum námsgreinum við heimspekisdeildina, að kennaraembættið í henni skuli að eins vera docentsembætti, en flest hinna prófessorsembætti, þar sem þó er gert ráð fyrir því í 51. gr. háskólareglugerðarinnar, að nemendur í íslenskum fræðum geti valið sjer hana sem aðalprófgrein við meistarapróf í íslenskum fræðum. Hygg jeg, að slíkt eigi sjer hvergi stað við háskóla erlendis, þó að jeg þori að vísu ekki að fullyrða það. Má og líklegt þykja að eigi veljist framvegis verulega hæfir menn í þessa kennarastöðu, ef eigi verður breytt til í þá átt, sem hjer er farið fram á; en öllum mun þó bera saman um, að það sje næsta áríðandi.

Geti háttvirt háskólaráð eigi fallist á þessa beiðni mína, sem jeg þó vona, þá leyfi jeg mjer í annan stað að mælast til þess, að háskólaráðið fari þess á leit við næstkomandi Alþingi, að jeg verði gerður að prófessor extra ordinem. með sömu launakjörum og aðrir prófessorar við háskólann. Jeg hefi nú þegar gegnt docentsembætti mínu í 8 ár samfleytt, með þeim bágu launakjörum, sem háttvirtu háskólaráði er kunnugt, og er nú orðinn fimtugur að aldri. Hefi jeg, sem kunnugt er, orðið að sætta mig við það að þrír menn utan háskólans, og mjer miklu yngri, hafa komist í betri stöður við háskólann en jeg, þar sem þeir bæði hafa sest í hærri laun, og laun þeirra fara síhækkandi, en mín ekki. Og enda þótt breyting kunni á þessu að verða í sumar, þá er samt mikið djúp staðfest í launakjörum á milli mín og þeirra eftir launafrumvarpi stjórnarinnar, þar sem gert er ráð fyrir, að þeir hafi að byrjunarlaunum 4500 kr., en jeg næ að eins 4000 kr. eftir 8 ára þjónustu, og býst jeg við, að flestum mundi þykja það hart aðgöngu í mínum sporum.

Jeg vona því, að háttvirt háskólaráð taki þessa málaleitun mína til greina og fari þá leiðina, sem því kann að þykja heppilegri“

Virðingarfylst.

Reykjavík, 17. júní 1919.

Jón J. Aðils,

docent.

Heimspekisdeild háskólans hefir á fundi 2. júlí síðastl. tekið mál þetta til meðferðar og segir um það:

„Lagt var fram til umsagnar deildarinnar brjef Jóns J. Aðils til háskólaráðsins, dags. 17. f. m., þar sem hann fer fram á það, að háskólaráðið hlutist til um, að lagt sje fyrir næstkomandi Alþingi frumvarp til laga um breyting á 1. gr. laga nr. 36, 30. júlí 1909, um laun háskólakennara, í þá átt, að kennaraembættið í sögu Íslands verði gert að prófessorsembætti, en til vara, að hann verði gerður að prófessor extraordinarius, með sömu launakjörum og aðrir prófessorar við háskólann.

Deildin fellst fyllilega á röksemdir umsækjandans og leggur eindregið til, að háskólaráðið hlutist til um, að fyrri liður umsóknarinnar nái fram að ganga. Skyldi svo ólíklega fara, að þessa væri eigi kostur, mælir deildin jafneindregið með því, að síðari liðnum verði fullnægt, með því að hún telur docent Jón. J. Aðils alls góðs maklegan, bæði fyrir vel rækt kenslustarf og fyrir ritstörf sín og rannsóknir.“ Á fundi háskólaráðsins 5. júlí var málið tekið til meðferðar og þannig bókað um það:

2. Lagt fram erindi Jóns J. Aðils docents, dags. 17. f. m., um að staða hans verði gerð að prófessorsembætti, en til vara, að hann verði gerður að prófessor extraordinarius, með sömu launakjörum og aðrir prófessorar við háskólann, ásamt umsögn heimspekisdeildar frá 2. þ. m. Háskólaráðið telur beiðnina á fullum rökum bygða og mælir hið besta með henni. Rektor falið að koma málinu á framfæri.“

Nú hafa hv. þingdm. heyrt umsókn Jóns Jónssonar og umsögn heimspekisdeildar háskólans og háskólaráðsins um hana. Þarf jeg því fáu við að bæta, öðru en því, að umsækjandinn er alkunnur orðinn fyrir áhuga og dugnað við rannsókn sögu Íslands, og hann hefir leyst þar stórstarf af hendi, þótt enn sje það að minstu leyti komið fyrir sjónir alþjóðar. Nú nýlega hefir hann lokið miklu ritverki eða rækilegri og samfeldri verslunarsögu Íslands; hefir hann hlotið verðlaun fyrir hana úr verðlaunasjóði Jóns Sigurðssonar. Má telja það tryggingu fyrir, að verkið sje gott, eins og reyndar mátti við búast frá hans hendi.

Umsækjandinn er orðinn fimtugur að aldri, og hefir jafnan átt við þröng kjör að búa. Síðan stríðið hófst hafa docentslaun hans, með þeim uppbótum, sem þeim hefir fylgt, verið allsendis ófullnægjandi handa honum og fjölskyldu hans; hafa þau ekki verið meira en helmingur þess, sem til hefði þurft til þess, að hann hefði getað lifað á þeim, ekki ríkmannlega, en nokkurn veginn skammlaust. Það er viðurkent, að þessi maður hafi unnið vel, og hefir fengið viðurkenningu fyrir starf sitt hjá þeim, sem um kunna að dæma. Það er því hart fyrir hann, að hann verði að lifa við verri kjör en yngri samverkamenn hans við háskólann, og hafa að skilningi prófessoranna ekki jafnvirðulega stöðu þar sem þeir. Því að þótt prófessor og docent, sem hvorttveggja er latína, þýddi upphaflega bæði kennari, þá eru docentar nú á dögum taldir lægri að metorðum en prófessorar. Jeg þykist vita, að hv. deild muni líta með sanngirni á það, sem mælir með frv. þessu, og treysti því, að það nái samþykki hennar og þingsins alls. En til þess að hv. deild fái að heyra álit fleiri manna en mitt um málið, hefi jeg ekki á móti, að því sje vísað til þeirrar nefndar, þar sem það á heima, mentamálanefndarinnar.