01.09.1919
Neðri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (1749)

132. mál, laun háskólakennara

Bjarni Jónsson:

Jeg þarf ekki að segja margt um fyrri lið till., þar sem hv. nefnd hefir fallist á hann. En jeg verð þó að geta þess, að mjer þætti það undarlegt að ákveða með lögum, að sami maðurinn skyldi hafa á hendi kenslu í allri íslenskri málfræði og menningarsögu.

Það væri mjög mikið starf, og mun tæpast fást maður, sem sje jafnfær í þeim tveimur námsgreinum, sem ekki eru neitt sjerlega skyldar.

Hins vegar fara mjög saman sagnfræði og menningarsaga.

Vona jeg því, að allir fallist á lagfæringu þessa.

En hitt, að hinn liður brtt. færi frv. aftur til sama vegar, er ekki rjett. Greinin er orðuð upp og hefir því ekki fyr komið til atkvæða. Þetta er því nýtt atriði. Og eftir því, sem jeg hefi næst komist, er ekki nema einn af háttv. nefndarmönnum því mótfallinn.

Jeg býst líka við því, að Jón Jónsson sje öllum háttv. þm. svo kunnur, að þeir muni fljótlega geta ráðið það við sig, hvort þeir vilja setja hann skör lægra en aðra.

Það er rjett, að háskólinn varð að taka í sína þjónustu gáfaða og góða fræðimenn, þótt ekki væru víðfrægir fyrir vísindastarfsemi, að undanteknum einum, sem nú er dáinn.

En þessi maður hefir, eins og kunnugt er, náð hjer almennri viðurkenningu, og hefir hann fært sönnur á hina góðu sagnfræðihæfileika sína t. d. með verslunarsögu sinni, sem hann hefir nú hlotið verðlaun Jóns Sigurðssonar fyrir o. fl.

Jeg býst því ekki við, að háttv. þm. þurfi að vera lengi að ráða það við sig, hvort þeir geta verið með till. þessari eða ekki, þar sem hjer er ekki um annað að ræða en að lagfæra það, sem áður var rangt gert.