29.08.1919
Neðri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)

127. mál, friðun fugla og eggja

Flm. (Sveinn Ólafsson):

Við 2. umr. máls þessa tókst svo slysalega til, að samþ. var brtt. á þgskj. 361, frá háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.). Gekk sú breyting í þá átt, að ófriða valinn eða fella niður 1. gr. frv.

Hins vegar gekk ekki fram brtt. um, að hann yrði ófriðaður eftir 2. gr. frv., og fór frv. svo frá umræðunni, að valurinn var ófriðaður eftir 1. gr. laganna frá 1913, en friðaður eftir þessu frv., en þar sem frv. er breyting á lögum um friðun fugla og eggja, frá 1913, þá getur það ekki staðist, að hann sje lýstur friðaður í einni gr., en ófriðaður í annari.

Jeg verð því að gera brtt. þá, sem hjer liggur fyrir, á þgskj. 502, til þess að koma á samræmi í frv. og lögunum.

Vona jeg, að hv. deild lofi frv. að fara leiðar sinnar í þessu formi, þótt spjallað sje það nú og spilt frá því, sem áður var.