29.08.1919
Neðri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)
134. mál, húsaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg skýrði því í fyrri ræðu minni, að í raun og veru hefði verið fyllilega rjettlátt að leggja verðhækkunarskatt á húseignir, og færði nokkur rök fyrir því.
Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) sagði, að hjer væri um pappírsverðhækkun að ræða, en það er ekki rjett. Þetta sjest best með því að bera þá saman, sem búa í gömlu húsunum, og þá sem nú þurfa að byggja. Það er ekki lítill munur á aðstöðu þeirra. Engum blandast hugur um það, hvað mikið fjárhagslegt happ var að ná í fasteignir fyrir stríðið fyrir þá, sem enn eiga þær.