29.08.1919
Neðri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)
134. mál, húsaskattur
Einar Arnórsson:
Það er eitt atriði enn í þessu máli, sem mjer hefir algerlega láðst að taka fram, en á sjerstaklega við um þennan skatt. Þetta atriði er það, að þennan skatt borga ekki þeir, sem njóta góðs af verðhækkuninni, heldur hinir, sem hafa orðið fyrir barðinu á henni. Það eru með öðrum orðum ekki leigusalar, sem skatturinn kemur niður á, heldur leigutakar. Ef nokkrum skatti er auðvelt að velta yfir á notanda, þá er það húsaskattur.