01.09.1919
Efri deild: 45. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1856 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)
134. mál, húsaskattur
Guðjón Guðlaugsson:
Frv. það, sem nú er til umr., er breyting á lögum frá 14. des. 1877, sem eru nú 42 ára gömul. — Er ekki nema eðlilegt, að hv. Nd. hafi fundist þau vera búin að slíta barnaskónum, og þeim því þörf á að fá nýja skó.
Það er rjett athugað, að ef fastur skattur væri á húsum, þá væri hann nú orðinn úreltur vegna þess, hve gömul lögin eru. En húsaskatturinn er kominn undir virðingarverði húsanna. Hann stendur því ekki í stað. Húsin hækka í verði til húsaskatts, alveg eins og til brunatryggingar eða kaupa og sölu. Ný virðing á nú að fara fram á öllum húseignum í landinu, og er þegar að nokkru leyti komin í framkvæmd, og fer hún mikið fram úr gamalli virðingu. Við þetta hækkar húsaskatturinn stórkostlega. Hann mun því hækka í tvær áttir, ef hundraðsgjaldið verður auk þessa hækkað um helming.
Aðaláhersluna legg jeg samt á það, að það er varhugavert að hækka skatt á húsum á sama þingi og hert er á húsaleigulögunum svo kölluðu, lögum, sem taka umráðarjettinn yfir húsunum af eigendunum gera þeim margvíslegan skaða. Þetta þætti mjer afarilla til fallið. Jeg vil því benda hv. nefnd á að athuga frv. einmitt með hliðsjón af húsaleigulögunum, og einnig með tilliti til hinnar miklu hækkunar á verðgildi húseigna.