10.09.1919
Efri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

134. mál, húsaskattur

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Það væri ekki gott fyrir ókunnugan, sem hingað kæmi, að geta upp á því, að hjer færu fram umræður um húsaskatt.

Fyrstur tók til máls hv. þm. Ísaf. (M. T.), að því er virtist mest til að verja framkomu sína í skattamálum yfirleitt. Hann byrjaði á að þakka sjer vitagjaldsfrumvarpið og aukatekjufrv. En jeg býst við, að það frv. gefi síst meiri tekjur en lestagjaldsfrv., sem það á að koma staðinn fyrir.

Þótt húsaleigulögin sjeu ófrjálsleg, þekki jeg ekki til, að menn geti ekki leigt hús sín fyrir fulla leigu þeirra vegna. Sú ástæða, að frv. um ábúðarskatt hafi lagst fyrir til svefns í hv. Nd., kemur ekki hjer til greina, því sá skattur hefir hækkað, af því hann er reiknaður í álnum og þær greiddar eftir verðlagsskrám, er hafa hækkað, en svo er því ekki farið um húsaskattinn; hann er ákveðinn í krónum og hefir því ekki fylgst með verðhækkuninni.

Viðvíkjandi því, er hæstv. fjármálaráðh. sagði um hundaskattinn, skal jeg taka það fram, að það, sem hann hafði eftir mjer, var alt rjett, því jeg skýrði rjett frá, svo hann hafði enga ástæðu til að taka neitt aftur af ummælum sínum um hann.