09.09.1919
Efri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)
136. mál, vitagjald
Frsm. (Halldór Steinsson):
Frv. þetta fer fram á talsverða hækkun á vitagjaldinu. Eins og kunnugt er, var það hækkað 1917 úr 25 aur. upp í 40 aur., og nú er það í frv. hækkað úr 40 aur. upp í 1 kr., og ætlast til, að tiltölulega sama hækkun verði á skemtiskipum og fiskiskipum. Þetta er talsverð hækkun, einkum þegar litið er á það, að skipagöngur verða miklu tíðari nú eftir stríðið en þær hafa verið hin síðari ár. Undanfarið hafa tekjurnar á þessum tekjulið numið litlu, og í fjárlögunum nú eru þær áætlaðar 50 þús. kr., en það er enginn vafi á því, að ef frv. verður samþykt, verða þær mikið meiri en áætlað er, eða yfir 100 þús. kr.
Það hafa verið farnar ýmsar leiðir hjer á þinginu nú til að afla landssjóði tekna, og hafa flestar þeirra verið samþyktar: þó hafa þær verið allmisjafnar, en þessi leið er einna sanngjörnust þeirra, og því leggur fjárhagsnefndin til, að það verði samþykt óbreytt.