30.07.1919
Neðri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)
98. mál, akfærir sýslu- og hreppavegir
Pjetur Þórðarson:
Það gleður mig, að frv. þetta er fram komið, og vildi jeg sjerstaklega mæla með því. En það var eitt atriði, sem jeg hefði gjarnan viljað skjóta til nefndar þeirrar, er væntanlega fær málið til meðferðar. Það er hvort ekki mætti ráða einhverja bót á því, sem talað er um í frv., að óskir, er koma fram um það að fá gerðar samþyktir fyrir sýslu, eða einhverja hluta hennar, skuli teknar til greina, eftir að fengið er álit og tillögur vegamálastjóra. Jeg vildi skjóta því til væntanlegrar nefndar, hvort ekki sje hægt að gera einhverjar ráðstafanir til tryggingar því að þetta álit og tillögur vegamálastjóra komi ekki of seint. Það hefir stundum gengið hægt að fá það. Jeg veit um það, að í Mýrasýslu hefir verið óskað slíks álits; um vissa vegagerð í samfleytt 5 ár. Síðastliðið haust fjekst skoðun vegarstæða að nokkru leyti, en var þá af svo skornum skamti, að ekki varð fult gagn að. Situr það því enn óútkljáð, og mun verða að hefja nýja atlögu til að fá þetta álit og tillögur vegamálastjóra. Það er vitanlegt, að vegamálastjóri er svo önnum kafinn og hefir ónóga aðstoð í sínu umfangsmikla starfi, svo að hjer virðist til of mikils mælst. Það, sem jeg vildi því að nefndin yfirvegaði sjerstaklega, er það, hvort ekki mætti í lögunum á einn eða annan hátt tryggja vegamálastjóra næga aðstoð, til þess að hann geti látið álit sitt í ljós sem bráðast, er þess er óskað.