30.07.1919
Neðri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1890 í B-deild Alþingistíðinda. (1882)
98. mál, akfærir sýslu- og hreppavegir
Flm. (Þórarinn Jónsson):
Það er sjálfsagt, að nefndin athugi þetta, þótt jeg geti ekki sjeð, að við þessu verði gert í lögunum. Vegamálastjóri hefir sjálfsagt misjafnlega mikið að gera við önnur störf, og mun ekki hægt að einskorða hann neitt í lögum þessum.
Í sambandi við þetta vil jeg gjarnan geta þess, að í mínu hjeraði hefir verið mikið að því gert að bæta vegi, og álít þau, sem leitað hefir verið hjá vegamálastjóra, hafa komið mjög fljótt. Þannig var hægt að byrja á dýrri og umfangsmikilli vegagerð hálfu ári eftir að fyrst var leitað til hans. Mjer kemur það því undarlega fyrir, ef svo er, að hann hafi vanrækt skyldur sínar á sumum stöðum. Það getur auðvitað hafa komið fyrir, ef hann hefir haft miklum öðrum störfum að gegna.
Jeg hygg það trauðla hægt að binda vegamálastjóra með lögum til að gefa álit sitt fyrir einskorðaðan tíma.