25.09.1919
Neðri deild: 73. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (189)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Magnús Guðmundsson:
Jeg á hjer brtt. á þingskjali 967, sem fer fram á að 5000 krónur verði veittar til undirbúnings raforkuveitu á bændaskólanum á Hólum. Eins og gefur að skilja, þarf töluverðan undirbúning undir slíkt starf, sem hjer um ræðir, og mun alls ekki veita af þessari upphæð. Meðal annars, sem gera þarf, þarf að hlaða þar garð, sem uppistöðugarð, og þarf hann að vera töluvert tryggari en venjulegur vatnsveitugarður. Er ekki því að neita, að till. er aðallega borin fram til þess, að fje sje fyrir hendi, er garðinn þarf að hlaða. Jeg benti á við 1. umr., að það væri gróðavænlegt fyrir landssjóð að koma upp þessari raforku. Jeg fór þá fram á, að 50 þús. kr. yrðu veittar til hennar, en háttv. deildarmenn vildu ekki fallast á það. Vona jeg nú, að háttv. deild samþykki þessa till., eftir að jeg hefi strikað eitt núllið aftan af.
Þá er það 8. liðurinn á brtt. nefndarinnar, sem jeg hefi töluverðan áhuga fyrir, og er það lækningastyrkurinn til Kristjáns Símonarsonar á Hraunum, en frsm. (M. P.) hefir mælt svo vel fram með þeim lið, að jeg tel það óþarft. En úr því að jeg stóð upp, get jeg ekki annað en minst á brtt. samgöngumálanefndar. Það undarlega hefir komið fram, að brtt. er sögð frá samgöngumálanefnd, en svo berst frsm. hennar (B. St.) á móti henni, og það með góðum lökum, að því er mjer virðist. Vildi jeg vekja athygli háttv. þingdm. á þessu.