10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1903 í B-deild Alþingistíðinda. (1919)
142. mál, fulltrúar bæjarfógeta
Bjarni Jónsson:
Jeg skal játa, að jeg er ekki svo fróður, að jeg geti eða mig langi til að fara að greina sundur lagamuninn á lögreglumálum og sakamálum. Jeg átti auðvitað við hin stærri málin, þau sakamál, sem undir getur verið komið líf og æra manna. Hitt tel jeg ekki skifta eins miklu máli, hvort einhver er sektaður um hærri eða lægri sekt, þótt hann jafnvel saklaus væri. En það tel jeg skifta miklu máli, hvort maður er saklaus dæmdur fyrir verknað, sem talinn er svívirðilegur, og getur varðað alla heill hans, eða hvort hann er sýknaður af slíkum áburði. Slík mál vil jeg ekki að farið sje gálauslega með, og til slíkra starfa vil jeg ekki treysta hverjum þeim, sem fram býðst. Sje jeg ekki, að sundurgreining hv 2. þm. Árn. (E. A.) geri neinn mun á því, sem jeg tók fram, eða hnekki því nokkuð. Munurinn á að framkvæma verk á eigin ábyrgð eða á ábyrgð annars manns átti ekki við það, hvort maðurinn leysti verkið sómasamlega ef hendi eða ekki, eða þá að hann væri lærður í lögum, heldur átti það við sálarástand mannsins sjálfs. Það má þá líka heita alkunna að menn vanda það betur, er þeir bera sjálfir ábyrgð á, heldur en ef aðrir bera hana, því þá er þeim hætt við að nota ábyrgðina að skálkaskjóli. Það er ekki heldur rjett, að hjer sje það ekki vani að hengja bakara fyrir smið, eins og hv. sessunautur minn (E. A.) vildi halda fram. Það er einmilt vaninn hjer, ef ekki lagalega, þá þó í almenningsálitinu. Það ljettir manninum ábyrgðina, ef hann á ekki sjálfur að bera hana, en þyngir hana, ef hann á sjálfur að bera hana. Það var því þetta sálarástand mannsins, sem jeg lagði áherslu á, en ekki annað. Jeg fæ því ekki sjeð, að orð hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hafi haggað nokkru af því sem jeg hefi sagt. Viðvíkjandi þessum tveimur mönnum er það rjett, að þeir eru miklu æfðari og færari að hafa stórmál til meðferðar heldur en þeir, sem valdir eru til þess að vinna undir öðrum. Það mun og rjett hjá hv. sessunaut mínum (E. A.), að bæjarfógetar geti verið vandaðir menn, en þeir geta líka verið breyskir menn, engu síður en aðrir, og gæti verið, að þeir hefðu tilhneigingu til að skjóta fram af sjer leiðinlegum vandamálum, svo sem kvennafarsmálum, og koma þeim yfir á aðra, eða láta það fara um hendur fulltrúanna.