25.09.1919
Neðri deild: 73. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (192)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Sveinn Ólafsson:
Það er ekki girnilegt að fallast á brtt. á þgskj. 973. meðan ekki er kunnugt, hvernig áætlun Sterlings verður breytt. Og er ekki að vita, nema sú breyting dragi úr samgöngum fyrir þennan hluta Suðurlands.
En aðallega stóð jeg upp vegna þess, að jeg hefi átt tal við Þorstein Jónsson, og telur hann sig ekki bundinn við tilboð sitt, ef annað skip verður sett til að keppa við hann. Ef þingið vill alveg sleppa tökum á tilboðinu, þá er ekkert við því að segja. En það getur verið vafamál, hvort vel gengur að kippa þessu í viðunandi horf, ef tilboðinu er slept.
Það hefir verið tekið fram af hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.), að endastöð sú, sem áætluð er, sje óheppileg, en það er óhætt að segja, að áætlunin sje yfirleitt óheppileg. Það eru áætlaðar 4 hafnir í Suður-Múlasýslu, en af þeim er að eins ein, sem skiftir máli. Á hinar verður ekki komist, nema í góðum veðrum, því skerja- garður er fyrir landi. Það er þýðingarlítið að setja hinar og þessar hafnir á áætlun, ef ekki er hægt að komast þangað nema með höppum og glöppum. Þessar hafnir hafa líka heldur rýr viðskifti og þurfa því ekki eins mikinn flutning, og ferðamannastraumur er þar ekki mikill. Það þýðir lítið að stilla slíku upp, og af skifta með því hafnir, sem slægur er í.
Jeg sje mjer því ekki fært að greiða þessari till. atkvæði, meðan jeg veit ekki hvernig áætlun Sterlings verður breytt, og eins af hinu, að jeg óttast, að Þorstenn Jónsson dragi sig til baka, þegar hann fær þennan keppinaut.
Jeg get ekki heldur fallist á þær athugasemdir, sem eiga að fylgja. Þær eru niðrandi og óþarfar. Óþarfar af því, að gera má ráð fyrir, að stjórnin hafi vaðið fyrir neðan sig, og niðrandi af því, að gefið er í skyn, að maðurinn vilji ekki standa við tilboð sitt og hafi í hyggja að svíkjast undan því.
Jeg vona, að till. verði ekki samþykt að órannsökuðu máli.