10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
142. mál, fulltrúar bæjarfógeta
Bjarni Jónsson:
Jeg stend hjer að eins upp til að bera af mjer æruleysi. Þar sem hv. frsm. (E. A.) vildi drótta því að mjer, að jeg væri byltingamaður og ætlaði að setja af ráðherra eða taka af þeim völd, þá verð jeg að bera slíkt af mjer. Jeg sagði að eins, að rjettara væri, að bæjarfógetinn veldi sjálfur. Sömuleiðis eru það hausavíxl, að jeg hafi fallist á það, sem hv. frsm. (E. A.) skrafaði hjer um sektir og annað þess háttar. Jeg talaði að eins um málið sálarfræðislega. Þá er það rangt, að jeg hafi gengið fram hjá almenningsálitinu, en hitt er satt, að það áfellir þann saklausa, en sýknar þann seka, það hengir bakara fyrir smið.
Jeg hefi nú fengið leyfi hjá hæstv. forseta til að bera af mjer æruleysi, og er jeg honum þakklátur fyrir.