21.07.1919
Neðri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (1930)
68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri
Flm. (Björn R. Stefánsson):
Þegar við háttv. þm. Borgf. (P. O.) bárum fram brtt. um, að ekki yrði hækkaður tóbakstollurinn, gátum við þess, að við hefðum í hyggju að flytja aðrar till., sem jafna myndu upp þann ímyndaða tekjuhalla, sem leitt hefði af því að samþykkja þær brtt. okkar. En nú eru þær brtt. okkar fallnar og hafa því ekki orðið til þess að valda neinum tekjuhalla
En þrátt fyrir það ætlum við að standa við það að flytja einhverja till. um tekjuauka, og liggur hjer nú fyrir ein af þeim.
Það kann nú sumum að virðast, að hjer sje ekki um mikinn tekjuauka að ræða. En jeg hygg þó, að hann muni nema 29 þús. kr. á ári, því að það hefir fróður maður sagt mjer, að af vörum þessum sjeu hjer framleiddar um 30 smálestir á ári hverju, og eftir því mundi gjaldið nema um 20 þús. kr.
Ekki býst jeg við, að þetta veiði til þess að minka tilbúning vörunnar, og það fyrir þá sök, að nú hefir verið samþykt að hækka innflutningsgjald á sömu vörunni, og mun það draga úr aðflutningnum.
Áður hefir tilbúningur vörunnar hjer að vísu verið tollfrjáls, en þess ber að gæta, að þá var aðflutningsgjaldið ekki nema 1.25 kr., en er nú hækkað um 0.75 kr., en tollur þessi er ekki nema 0.66 kr.
Það ætti því að vera ljóst, að þetta gerir engu erfiðara fyrir um tilbúninginn innanlands en áður var.
Við höfum nú ekki sett tollinn á konfekt og brjóstsykurgerð hærri en sem svarar 1/3 af innflutningsgjaldinu, vegna þess að við viljum ekki, að svo fari nú sem þá er slíkur tollur var lagður fyrst á vindlagerðina, því að eins og menn vita, lagðist hún niður skömmu síðar. Að svo fari um brjóstsykurgerðina, þó þessi skattur verði á hana lagður, ætti ekki að þurfa að óttast, því bæði er þessi skattur hlutfallslega lægri, saman borið við aðflutningsgjaldið, og svo var aðstaðan þá miklu erfiðari, þar sem innflutningsgjald það, sem nú er 4 kr. á kg., var þá ekki nema 1 kr.
Það getur nú verið, að sumum þyki tekjuaukinn, sem af þessu fæst, svo lítill, að ekki taki að hirða hann.
En því er nú svo farið hjer á þingi, að hvað menn telja lítið eða mikið fje, það fer mjög mikið eftir því, hvort menn eru með eða móti því, sem um er að ræða.
Þess eru mörg dæmi, að þótt um stórupphæðir sje að ræða, er mjög lítið úr þeim gert af þeim, sem vilja fá þær veittar til einhverra hluta. Aftur á móti geta nokkrar krónur orðið mönnum mesti þyrnir í augum, ef þeir eru málinu mótfallnir.
Þetta fer því alt eftir afstöðu manna til málanna. En jeg held nú, að þessi 20 þús. kr. tekjuauki sje alls ekki svo smár, að honum beri að neita, þegar þess er líka gætt, að með þessu er ekki þrengt að iðnaði þessum.
Vil jeg svo gera að till. minni, að frv. verði vísað til fjárhagsnefndar.