04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1911 í B-deild Alþingistíðinda. (1935)

68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Nefndin leyfir sjer að bera fram örlitla brtt., á þgskj. 232. Stafar hún af því, að í 5. gr. frv. er talað um bæði hegningarsektir og dagsektir, en aftur í 7. gr. er að eins minst á, hvert hegningarsektir renni. Þess vegna ber fjárhagsnefndin fram þá brtt., að í stað „Hegningarsektir“ í 7. gr. komi: ,,Sektir“, sem nái þá bæði yfir hegningarsektir og dagsektir.

Jeg býst ekki við, að jeg þurfi að mæla frekar með till., því að hún er sjálfsögð.