22.08.1919
Efri deild: 37. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (1946)
68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Jeg er á sömu skoðun og hv. 4. landsk. þm. (G. G.) um það, að best sje að hugsa sem best um málefnin áður en talað er um þau. Nú þarf ekki til vindlagerðar annað leyfisbrjef en til iðnaðar, sem kostar kr. 100, svo hjer hefir þá hv. 4. landsk. þm. (G. G.) talað fullsnemma. Þetta kemur glögt fram af 4. gr. Þar stendur, að ekki megi versla með minni birgðir í einu en fyrir 25 kr. Hjer er því ekki um neina smásölu að ræða. (G. G.: Stórsalar þurfa líka leyfisbrjef). Um brjóstsykurverksmiðju bæjarins þarf hv. 4. landsk. þm. (G. G.) ekkert að óttast, því eigandi hennar hefir tjáð sig ekkert óánægðan með þennan toll.