12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1925 í B-deild Alþingistíðinda. (1963)
68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) hefir þegar tekið fram, í hverju breytingin á þessu frv. er fólgin. Fjárhagsnefnd þessarar hv. deildar hafði fallist á að láta frv. standa eins og það er komið frá Ed., því hún vildi ekki gera það að ágreiningsatriði milli deildanna, að Ed. lækkaði gjaldið. Hins vegar hefði hún heldur kosið, að frv. hefði fengið að standa óhaggað eins og það fór úr Nd., og nú hefir nefndin komist að því, að Ed mundi ef til vill ganga að frv. eins og það var upphaflega, komi það nú aftur fyrir þá hv. deild. Og getur því nefndin ekki haft á móti, að brtt. hv. 2. þm. S.-M. (B. St.) verði samþykt.
Svo skal jeg geta þess, að Ed. hafði gert orðabreytingu á tveim stöðum, sett orðið „ríkissjóður“ í stað „landssjóður“, en svo gleymt því á einum stað. Vill nefndin leiðrjetta það sem prentvillu og finnur ekki ástæðu til að vera að koma með sjerstaka brtt. um svo smávægilegt atriði.