15.09.1919
Efri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1926 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)
68. mál, gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekti og brjóstsykri
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg hefi leyft mjer að bera fram brtt. við frv.; eru það hinar sömu og voru samþyktar áður hjer í hv. deild, og því ekki þörf á að ræða þær mikið; það var svo mikið talað um þær þegar þær voru samþyktar hjer. Hv Nd. breytti frv. í hið fyrra form sitt, og hún vildi ekki einu sinni mæta oss á miðri leið, t. d. með því að samþykkja annanhvorn liðinn. Það er því ljettari eftirleikurinn.
Jeg lít svo á, að með frv. þessu sje verið að setja á fót bannlög gegn þessum atvinnugreinum, en alls ekki verið að hugsa um tekjuauka fyrir landssjóðinn. En slík bannlög eru hvorki nauðsynleg nje holl fyrir þjóðfjelagið, því affarasælast mun vera að efla fremur iðnað vorn og atvinnugreinar en að leggja allskonar höft fyrir hann. Og jeg tel víst, að hv. þm., er samþyktu brtt. um daginn, hafi litið svo á málið, og vænti jeg, að þeir hviki ekki frá því; annars læt jeg það ráðast, hvernig um brtt. fer; jeg hefi ekki átt tal við aðra um hana.